Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) heldur uppi heiðri Íslendinga og er með fullt hús að loknum tveimur umferðum á Kviku Reykjavíkurskákmótinu. Flestir íslensku keppendurnir áttu annars erfitt uppdráttar í þessari annarri umferð, flestir að tefla við sér sterkari andstæðinga.

Hjörvar hafði svart gegn Tamas Petenyi (2463), alþjóðlegum meistara frá Slóvakíu. Lengi vel stóð Hjörvar höllum fæti og átti Tamas rothögg í 20. leik en fór of stutt með drottninguna hér

20.Db6?? hér átti Tamas 20.Dxa7! og hvítur vinnur mikið lið.

Hjörvar tefli svo miðtaflið að mestu skipamun undir en virtist hafa stjórn á frelsingja hvíts á d-línunni. Öll taphætta var líklega úr sögunni þegar Hjörvar nær svo d-peðinu. Með einhverri ótrúlegri seiglu tókst Hjörvari svo að stela sigrinum í tímahrakinu í lokin!

Skákin skýrð:

Hér eru svo upptaka af lokum á skákinni hjá Hjörvari.

FIDE meistarinn Hilmir Freyr Heimsson (2309) fylgdi eftir góðri byrjun sinni og gerði öruggt jafntefli við Kaido Kulaots (2548). Hilmir beitti Catalan byrjun og staðan var í jafnvægi þegar hann bauð jafntefli sem Kaido tók.

Hilmir er með 1,5 vinning eins og Hannes Hlífar Stefánsson (2519) og Héðinn Steingrímsson (2519) sem gerðu jafntefli við sterka andstæðinga. Hannes átti örlitla sigurmöguleika peði yfir gegn Bogdan Daniel-Deac (2639) en náði ekki að nýta umframpeðið. Héðinn hélt jöfnu gegn Haik Martirosyan (2632).

Allir hinir íslensku stórmeistararnir töpuðu sínum skákum.

Lítið var um óvænt úrslit en þó náði Sæþór Ingi Sæmundarson (1216) góðu jafntefli gegn Jóni Árna Halldórssyni (2115) og Josef Omarsson (1211) náði jafntefli í miklum flækjum gegn Aroni Thor Mai (2110). Ólafur Gísli Jónsson (1800) lagði svo Áskel Örn Kárason (2270) í mikilli baráttuskák.

Eitthvað gæti aðdáendaklúbbur Martin Wecker (2195) verið að stækka en eftir frábæran sigur í gær gerði hann jafntefli með svörtu gegn Sasa Martinovic (2548). Sjá skondna sögu hans hér.

Hér má sjá útsendingu 2. umferðar með skýringum Ivans Sokolov og Helga Ólafssonar.

Martin Wecker
Jóhann varð að lúta í dúk í dag eftir misheppnaða byrjanataflmennsku
Thybo lagði Braga að velli
Alþjóðlegi meistarinn Áskell Örn Kárason einbeittur sem fyrr
Helgi Áss Grétarsson átti ekki sinn besta dag
Guðmundur mætti Kacper Piorun sem lagði að velli á ÓL í Baku 2016
Omar yfirdómari við upphaf umferðar

Þriðja umferðin verður tefld klukkan 15:00 á morgun, laugardag. Hjörvar Steinn Grétarsson verður á efsta borði og mætir þar Matthias Bluebaum (2674) frá Þýskalandi. Hilmir fær svart á Levan Pantsulaia (2564) frá Georgíu.

Mótið á Chess-results

Heimasíða mótsins

Myndir frá 2. umferð

Glæsilegar myndir Þorsteins Magnússonar frá 1. umferð

Skákir á PGN

- Auglýsing -