Hannes að tafli á EM einstaklinga í Natura 2021.

Rauf Mamedov er orðinn einn efstur á Kviku Reykjavíkurskákmótinu eftir góðan sigur á Frakkanum Maxime Lagarde. Azerinn beitti sjaldgæfri leið í Kóngsindverja sem virtist koma Frakkanum eilítið á óvart.

Stuttu á eftir kom peðsfórn og Azerinn sigldi þessu heim. Mamedov hefur 5,5 vinning og er einn í efsta sæti.

Mikið var um stutt jafntefli á efstu borðunum. Hovhannes Gabuzyan sem var meðal efstu manna gerði jafntefli við fyrrum Evrópumeistarann, Liviu-Dieter Nisipeanu. Þrátt fyrir að hafa svart hefði sá þýski líklega átt að tefla áfram. Eftir 10…Dd5 er hann líklegast með aðeins betra tafl.

Erdos and Abbasov gerðu einnig snögg jafntefli sem og Hjörvars-baninn Nagy og Hannesar-baninn Yilmaz. Sá tyrkneski líklegast enn í losti yfir að hafa misst af Hxd7 í gær!

Alexei Sarana tefldi byrjunina mjög hratt gegn Anton Demchenko. Hann var með 1:31 á klukkunni í þessari stöðu og svartur á erfitt með að hróka.

Dxa6 í stöðunni að neðan var of mikil græðgi.

31.Dxa6? hleypti svarta riddaranum út 31…Rg6 og svo komst hann inn. Aftur eru riddararnir í aðalhlutverki í sigri Demchenko með svörtu mönnunum.

Demchenko, enn einn Selfyssingurinn ef ritstjóra skjátlar ekki, komst með þessum sigri í annað sætið ásamt öðrum. Gabuzyan er með honum þar eftir jafnteflið en þeir hafa 5 vinninga. Pólverjinn Kacper Piorun komst einnig í þennan hóp. Á boðstólnum var McCutheon varíanturinn af Frakkanum. Kóngarnir fóru í kapphlaup!

Svarti kóngurinn hljóp hraðar!

Hinn ungi Þjóðverji Vincent Keymer náði einnig sigri með svörtu og komst í pakkann í öðru sæti. Hann virtist fá þægilega stöðu í byrjuninni og var vel undirbúinn, í kjölfarið vann hann peð og Gajewski varð að lúta í dúk.

Hannes Hlífar Stefansson er orðinn efstu Íslendinga. Hann lagði ungan og efnilegan Íra að velli. Fjórir samstæðir frelsingjar eru að jafnaði betri en tveir! Hannes var sammála því. Hannes hefur nú 4 vinninga og í 18. sæti ásamt öðrum.

Næstu íslensku keppendur hafa 3,5 vinning. Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði sinni skák en þeir Jóhann Hjartarsson, Héðinn Steingrímsson og Vignir Vatnar Stefansson gerðu jafntefli í sínum skákum, Vignir og Héðinn innbyrðis. Loks vann Bragi Þorfinnsson sína skák og bætist í hópinn.

Skák dagsins:

Staðan:

Útsending umferðarinnar:

Allir keppendur og starfsmenn fóru í PCR-próf í gær og reyndust allir neikvæðir. Samkvæmt reglum eru þó tveir keppendur í sóttkví þar sem þeir teljast „exposed“ en þeir tefldu við keppandann sem greindist með Covid-19. Á meðal þeirra sem eru í sóttkví er Þorsteinn Þorsteinsson.

Þorsteinn þurfi að draga sig úr mótinu vegna sóttkvíar

Pörun 7. umferðar: Piorun fær hvítt á Mamedov á efsta borði. Hannes mætir Samvel Ter-Sahakyan. Hjörvar mætir franska ungstirninu Marc’Andria Maurizzi en Vignir fær annan Íslendingaslag þegar hann mætir Jóhanni Hjartarsyni.

Jóhann með jafntefli með svörtu gegn IM Baltag
„Hinn“ Mamedov, Nidjat Mamedov gerði jafntefli við Navara í snarpri Najdorf skák.
Hjörvar varð að lúta í dúk í dag gegn efnilegum skákmanni
Hilmir tapaði í dag
Lagarde réði ekki við Mamedov
Skákdómarinn þrautreyndi, Ríkharður Sveinsson
Piorun er á efsta borði á morgun
Símon með gott jafntefli með hvítu gegn stórmeistaranum Helga Áss
Gauti niðursokkinn í sína skák

Mótið á Chess-results

Heimasíða mótsins

Myndir frá 6. umferð IÞJ

Myndir Þorsteins frá 6. umferð

Skákir mótsins PGN (fyrstu 4 umferðir)

- Auglýsing -