Tveir eru nú efstir og jafnir á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / EM einstaklinga í skák. Rússinn Anton Demchenko lagði Þjóðverjann Alexander Donchenko að velli í umferð dagsins og náði þar með Azeranum Rauf Mamedov að vinningum. Skemmtilegt að báðir hafa þeir Demchenko og Donchenko teflt með Selfyssingum á Íslandsmóti Skákfélaga. Rauf Mamedov samdi stutt jafntefli á efsta borði í skák sinni við Pólverjann Kacper Piorun. Þeir félagar hafa 6 vinninga af 7 mögulegum.

Demchenko tefldi flotta pósaskák gegn félaga sínum úr Skákfélagi Selfoss og nágrennis, Alexander Donchenko. Demchenko fórnaði peði og fékk flottar bætur með sterkan kóngsbiskup. Þessi kóngsbiskup veitti svo náðarhöggið.
35.Bxg6! kláraði dæmið fyrir Chicago, eins og Michael Jordan forðum 35…fxg6 36.He6 Hh6 og 37.Hxd6!
Hróksgreyið á a7 er óvaldað og fellur með skák, flott skák hjá Selfyssingnum knáa!
David Navara vann sína skák gegn Jonas Buhl Bjerre sem vann svo skemmtilega í gær.
Navara tók mikla áhættu með langri hrókun í skarpri stöðu. Baráttan var mikil og skipti skákin örugglega oft um tímabundinn eiganda.
Evgeny Romanov vann sína skák gegn Daniele Vocaturo furðu auðveldlega. Sikileyjarvörnin í byrjun var eitthvað furðuleg en einhvern veginn var kominn Maroczy bind staða og Romanov vann svo bara auðveldlega og var með unnið tafl í innan við 20 leikjum.
Nidjat Mamedov tefldi svo algjöra sýruskák gegn Maxime Lagarde. Raunar var það Frakkinn sem sá um sýruna. Hann bauð upp á árás á eigin kóng og fór svo á flakk með hann sem endaði mjög illa!
Loks virtist Mustafa Yilmaz hafa jafnað sig á sinni yfirsjón gegn Hannesi. Hann hélt á peði og náði þar með að halda sinni forystu….eitthvað annað en fótboltalandslið Tyrkja sem lét Svartfellinga jafna í lokin. Yilmas lét ekki jafna í sinni skák!
Á 35. borði tók undirritaður eftir skák þeirra Iulian Baltag, Rúmenskur IM, sem hafði svart gegn hin þrælmassaða Kaido Kulaots…nei án gríns hann er óþægilega massaður! Baltag tefldi eitt af uppáhaldsafbrigðum undirritaðs í Frakkanum. Snorri G Bergsson hefur líka beitt þessu afbrigði.
Það sem var skemmtilegt var að Júlían náði að fórna þrisvar á sama reitnum, skemmtilegt!
29…Rdxe5! var fyrsta fórnin hvítur getur ekki tekið 30.dxe5 vegna 30…Dc5+ og svo koma …Re3+ og …Hxg2 í kjölfarið…málverkasýning!
Nokkrum leikjum síðar var e5 reiturinn aftur í aðalhlutverki!
35…Rge5! Var flott leið til að einfalda taflið….en ekki halda að Júlían hafi verið hættur, ó nei!
39…Rxe5! geggjaður þessi gæji! (sagt með rödda Gumma Ben) 40.Hxe5 þá kom 40…Hfxg3 og eistneska vöðvatröllið gafst upp. Geggjuð skák hjá Baltag!
Snúum okkur að heimamönnum!
Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í tiltölulega tíðindalítilli skák gegn Armenanum Samvel Ter-Sahakyan og er því enn hæstur á blaði af íslensku keppendunum. Hannes hefur 4,5 vinning og er jafn öðrum keppendum í 19. sæti. Ef lokastaðan yrði svona á mótinu myndi Hannes vinna sér inn sæti á Heimsbikarmótinu en 23 efstu keppendur mótsins fá sæti á því móti sem er eitt það stærsta í skákheiminum og haldið annað hvert ár.
Fjórir Íslendingar sitja á fjórum vinningum og gætu með góðum endaspretti gert atlögu að þessum lykilsætum. Þetta eru þeir Héðinn Steingrímsson, Jóhann Hjartarsson, VIgnir Vatnar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson. Allir gerðu þeir jafntefli í dag en Helgi Áss vann sína skák.
Skák Jóhanns og Vignis var skemmtileg en einfaldaðist svo í jafnteflislegt endatafl.
Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði gegn yngsta stórmeistara Frakka, Marc’Andria Mauritzi. Sá er gríðarlegt efni og lagði Hjörvar í mikilli baráttuskák en sá franski tefldi ansi vel með svörtu!
Fjölmörg óvænt úrslit litu dagsins ljós á neðri borðum. Gauti Páll Jónsson tefldi skínandi vel með hvítu og lagði að velli Hilmi Frey Heimisson sem var að eiga gott mót í fyrri hlutanum.
Stefán Bergsson gerði jafntefli við stórmeistarann Guðmund Kjartansson, vel gert hjá honum.
Hinn ungi Jósef Ómarsson vann flottan sigur á Sigurði Ingasyni en næstum 600 elóstig skilja þá að!
Arnar Milutin Heiðarsson lagði svo alþjóðlega meistarann Áskel Örn Kárason að velli í aðeins 24 leikjum. Það er skák dagsins hjá okkur!
Úrslit dagsins
Skákskýringar í endurvarpi
Staða efstu manna

Ísraelski skákmaðurinn Patt hefur ótrúlegt en satt ekki gert jafntefli ennþá á mótinu!Pörun 8. umferðar
Skákir mótsins PGN ( til og með 6. umferð)





















