Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson er efstur íslensku keppendanna en hann vann sína þriðju skák í röð í umferð dagsins. Það sem meira er, hann vann sína aðra skák í röð gegn stórmeistara með yfir 2610 elóstig!

Þessi lokasprettur Helga kemur honum í góða stöðu í að gera atlögu að 23 efstu sætum á mótinu sem gefa sæti á Heimsbikarmótinu. Líklegast er að Helgi þurfi að lágmarki 1,5 vinning úr síðustu tveimur skákunum þar sem byrjun hans á mótinu gerir það að verkum að oddastig (tiebreak) Helga eru ekki góð.

Skoðum fyrst gang mála á toppnum!

Anton Demchenko sem teflt hefur fyrir Skákfélg Selfoss á Íslandsmóti Skákfélaga er orðinn einn efstur á mótinu eftir hreint ótrúlega góða taflmennsku á mótinu! Aðal skýrandi mótsins skilur hreinlega ekki hvernig Anton er ekki stigahærri en þau 2597 elóstig sem hann er með í augnablikinu!

Anton nýtti sér þá staðreynd að Keymer og Mamedov gerðu jafntefli á efsta borði.

Rauf Mamedov tefldi aftur 7…h6!? í kóngsindverja sem er aðeins ellefti vinsælasti leikurinn í stöðunni. Hafi sá leikur verið tilraun til að koma á óvart í 7. umferð þá var leikurinn virkilega settur í prófraun í þessari skák þar sem Keymer hafði augljóslega tíma til að undirbúa sig!

Vincent Keymer tefldi hratt í byrjun og var augljóslega undirbúinn, hinsvegar virtst undirbúningur hans ekki skila miklu. Mamedov náði tiltölulega auðveldu jafntefli og ætti að komast nokkuð auðveldlega á Heimsbikarmótið en eina spurningin er hvað hann er tilbúinn að leggja undir til að vinna Evrópumeistaratitilinn!

Þetta jafntefli opnaði stórt tækifæri fyrir Demchenko. Demchenko hafði hvítt og upp kom nokkuð óvenjuleg staða úr Sikileyjarvörn. Uppskipti urðu á drottningum en hvítur hafði biskupaparið. Svartur virtist fá jafnt tafl en skrikaði fótur á einhverjum tímapunkti og Demchenko fékk endatafl þar sem hann hafði biskup gegn riddara. Í fljótu bragði virtist Anton hafa allt að því teflt módelskák í slíku endatafli og það skilaði honum mikilvægum vinningi!

Eftir þennan sigur er Demchenko með ótrúlegt skor,  7,5 vinningar af 9. Það samsvarar árangri yfir 2800 elóstigum og í augnabliknu eru stig hans að hækka um heil 28 stig!

Skákin á þriðja borði milli Nidjat Mamedov og Alexey Sarana virtist nokkuð frumleg og erfitt að meta stöðuna. Þegar jafntefli var samið hefði Azerinn líklega átt að vera tilbúinn að tefla áfram!

Næstu fimm skákir á efstu borðum enduðu í jafntefli, flest tiltölulega baráttulaus en Nisipeanu þurfti samt að verjast með hrók gegn hrók og biskup nokkuð lengi. Þjóðverjinn var hinsvegar meira og minna með allt á hreinu og var aldrei í vandræðum.

Grandelius kom mörgum á óvart með því að beita London kerfinu með hvítu. Líklegast kom hann andstæðingi sínum líka á óvart og á einum tímapunkti var hann með +1 samkvæmt tölvunum sem er ansi vænlegt á þessu getustigi. Nils fann hinsvegar ekki besta framhaldið og varð að gera sér jafntefli að góðu.

Þessi jafnteflishrina á efstu borðum gerði þremur skákmönnum kleift að klífa upp töfluna.

Fyrstur til að gera það var Ítalinn Daniele Vocaturo. Hann var líklega lengi í vandræðum og með verra en hélt velli og yfirspilaði loks andstæðing sinn.

Bogdan-Daniel Deac, rúmenska ungstirnið kom sér líka í baráttuna. Hann þurfti að hafa nokkuð fyrir sínum sigri en lét umframpeðið telja á endanum.

Loks var það hinn reyndi Daniel Fridman sem reyndist of erfiður fyrir fyrrverandi Evrópumeistarann Ivan Saric frá Króatíu. Fridman er gríðarlega reyndur og var hluti af Evrópumeistaraliði Þjóðverja sem vann einn óvæntasta liðssigur í seinni tíð. Skákmaður sem ekki má vanmeta!

Vonarstjarna Íslendinga á þessu stigi mótsins er Helgi Áss Grétarsson. Eftir rólega byrjun minnti Helgi á sig með sigri á Marin Bosiocic (2610) í 8. umferð. Hafi menn haldið að það hafi verið einhver grís þá þrykkti Helgi skrúfjárninu aftur niður gegn Grzegorz Gajewski (2617) í 9. umferðinni og sýndi að honum var fullkomlega alvara!

Tveir glæsilegir sigrar í röð hjá Helga. Sigurinn í 8. umferð var að mörgu leiti meiri „seiglusigur“ en sigurinn í 9. umferð var einfaldlega yfirspilun!

Skákin var almennt séð nokkuð þétt hjá Helga en hann lét ekki taktískan möguleika fram hjá sér fara.

Í þessari stöðu lék Helgi 28.Bxf7! sem meira og minna tryggir hvítum vinningssstöðu. Liðsvinningur fylgdi í kjölfarið og úrvinnslan vafðist ekki fyrir Helga.

Helgi er efstu Íslendinga og líklega sá eini með raunhæfan möguleika á að enda í einu af tuttugu og þremur efstu sætunum sem gefa sæti á Heimsbikarmótinu. Helgi hefur 6 vinninga af 9.

Næstur er Héðinn Steingrímsson með 5,5 vinning af 9. Héðinn vann sigur á rúmenska alþjóðlega meistaranum Iulian Baltag. Kannski ekki hefndin sem við vorum að vonast eftir fyrir tap fótboltalandsliðsins, en þessi hefnd verður að duga!

Næstir Íslendinga eru Hannes Hlífar Stefánsson sem gerði jafntefli í sinni skák við ungan Azerskan skákmann og Davíð Kjartansson sem vann óvæntan sigur með svörtu gegn Hjörvari Steini Grétarssyni.

Vert er að minnast á frábæra taflmennsku Vignis Vatnars Stefánssonar. Vignir tefldi af fítonskrafti gegn Marin Bosiocic og ljós var að hann sá mun lengra í flækjunum sem Króatinn viðurkenndi fúslega eftir skákina. Heppni Króatans var hinsvegar fólgin í því að Vignir valdi einfaldlega ekki rétta vinningsleið.

Helstu úrslit í 9. umferð

Efstu menn eftir 9. umferð

Pörun 10. umferðar á efstu borðum

Mótið á Chess-Results

Myndir frá 9. umferð

Myndir Þorsteins frá 9. umferð

- Auglýsing -