Spennan er orðin mikil á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / EM einstaklinga. Baráttan er hörð á toppnum og ekki síður um sætin tuttugu og þrjú sem gefa rétt til keppni á Heimsbikarmótinu. Helgi Áss stendur þar best Íslendinga með 6 vinninga af 9 en á fyrir höndum erfitt verkefni í dag, svart á Mikhail Antipov. Skemmtileg staðreynt að þeir eru einu tveir keppendur mótsins sem orðið hafa Heimsmeistarar unglinga (U20).
Skákskýringar í beinni með Ivan Sokolov og góðum gestum:
Sama streymi má nálgast á Twitch rásinni Reykjavik Open og einnig hægt að skoða það í Twitch Appinu á símum.
https://www.twitch.tv/reykjavikopen
Pörun efstu borða í 10. umferð

Þeir sem vilja skoða skákir hafa svo ýmsa möguleika.
Fyrir farsímanotendur mælum við með því að hlaða niður appinu FollowChess þar sem hægt er að fylgjast með flestum skákviðburðum heims í beinni.
Öll úrslit má svo nálgast á Chess-results

















