Mynd: Skák.is/Maria Emelianova

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577), vann öruggan sigur á alþjóðlega meistaranum Fy Antenaina Rakotomaharo (2480) frá Madagaskar í sjöttu umferð FIDE Grand Swiss-mótsins sem fór í gær. Hjörvar rúllaði honum örugglega upp í 30 leikjum eftir skemmtilega mannsfórn.

Frídagur er í dag. Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 12. Þá teflir Hjörvar við serbneska stórmeistarann og Íslandsvininn Luka Budisavljevic (2508).

Fimm skákmenn eru efstir og jafnir með 4½ vinning. Hin kínverska Tingjie Lei (2505) er efst í kvennaflokki.

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -