Sigur í höfn Vignir Vatnar vann yfirburðasigur á Skákþingi Reykjavíkur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Tvær umferðir fóru fram í gær á alþjóðlega mótinu í Uppsölum í Svíþjóð. Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2399) er í 2.-5. sæti eftir 4½ vinning eftir jafntefli í gær. Það fyrra á móti félaga sínum, Hilmi Freyr Heimissyni (2253) og það síðara gegn alþjóðlega meistaranum og Svíþjóðarmeistaranum Jung Min Seo (2456).

Hilmir er í 6.-7. sæti með 4 vinninga. Hann tapaði fyrir Svíanum Edvin Trost (2297) í seinni skák gærdagins. Alexander Oliver Mai (2062) átti ekki góðan dag í gær og tapaði báðum sínum skákum. Annars fyrir hins vegar nafna sínum, Norðmanninum, Alexander Oye-Stromberg (2131) og hins vegar fyrir tékkneska FIDE-meistaranum Richard Stalmach (2341). Hann hefur 1½ vinning og er í 33.-36. sæti.

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 15. Ekki er búið að gefa út pörun

Alls taka 38 skákmenn þátt í mótinu. Vignir er fjórði í stigaröð keppenda, Hilmir er nr. 19 og Alex nr. 28.

- Auglýsing -