Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2399) er í 2.-3. sæti fyrir lokaátökin á alþjóðlega unglingamótinu í Uppsölum í dag þegar tefldar verða tvær umferðir. Vignir vann Svíann Edvin Trost (2274) í sjöundu umferð sem fram fór í gær og hefur 5½ vinning. Sænski FIDE-meistarinn Hampus Sörensen (2370) er efstur með 6 vinninga.
Hilmir Freyr Heimisson (2285) gerði í gær jafntefli við hins búlgörsku Viktoriu Radeva (2248) er í 5.-8. sæti með 4½ vinning. Alexander Oliver Mai (2062) gerði jafntefli við Svíann Victor Muntean (1864) og er í 32.-36. sæti með 2 vinninga.
Umferðir dagsins hefjast kl. 9 og 15. Í fyrri umferð dagsins teflir Vignir við hollenska FIDE-meistarann Siem Van Dael (2385), Hilmir við Norðmanninn Alexander Oye-Stromberg (2111) og Alex við Norðmanninn Kim Roger Hansen Westrum (1977).
Alls taka 38 skákmenn þátt í mótinu. Vignir er fjórði í stigaröð keppenda, Hilmir er nr. 19 og Alex nr. 28.















