Útsjónarsamur Vignir Vatnar á Hótel Natura.

Hasselbacken mótinu lauk í dag þegar keppendur kláruðu tvær síðustu kappskákirnar. Vignir Vatnar Stefánsson heldur áfram að gera það gott og hann endaði mótið jafn öðrum í 2. sæti með 6,5 vinning af 8 en endaði í 3. sæti á stigum.

Fínn árangur sem fyrr hjá Vigni sem hækkar um 7 elóstig í kappskákunum. Vignir hefur hækkað nánast á hverju einasta móti undanfarið og nálgast nú 2460 elóstig á „lifandi elóstigalista“.

Hér er sigurskák Vignis í lokaumferðinni:

Benedikt Briem hækkar um 8 elóstigBenedikt Briem var næstu íslensku keppendanna með 5,5 vinning og hann hækkar um 8 elóstig. Arnar Milutin Heiðarsson endaði með 5 vinninga og hækkar um 21 elóstig fyrir kappskákirnar. Næstir á blað voru Birkir Ísak Jóhannsson og Agnar Tómas Möller með 4,5 vinning. Birkir lækkar á stigum en Agnar Tómas hækkar um 9 stig. Stephan Briem náði sér ekki á strik og endaði með 4 vinninga.

Mikael Bjarki hækkaði vel á stigum

Yngri keppendur í flokknum hækkuðu þó nokkrir á stigum. Gunnar Erik Guðmundsson skilaði 4 vinningum og hækkaði um 30 elóstig. Mikael Bjarki Heiðarsson hlaut 3,5 vinning og hækkaði um tæp 45 stig og Matthías Björgvin Kjartansson með sama vinningafjölda hækkaði um tæp 71 elóstig! Tómas Möller hlaut 3 vinning og hækkaði um tæp 57 elóstig. Jóhann Helgi Hreinsson hækkaði um 4 elóstig fyrir sinn árangur með sama vinningafjölda.

Guðrún Fanney var hlutskörpust íslensku keppendanna á Lilla Hasselbacken

Guðrún Fanney Briem endaði í 5. sæti á stigum á Lilla Hasselbacken mótinu sem var neðri flokkurinn á skákhátíðinni. Guðrún hlaut 5,5 vinning í skákunum 8 og hækkaði sig um 27 elóstig. Þorsteinn Jakob Þorsteinsson endaði með 5 vinninga og hækkaði um 16 elóstig. Sigurður Páll Guðnýjarson með sama vinningafjöld hækkaði um heil 34 elóstig. Markús Orri Jóhannsson hlaut 4,5 vinning og hækkaði um 12 elóstig en Birkir Hallmundarson sem einnig endaði með 4,5 vinning lækkaði á stigum. Engilbert Viðar Eyþórsson hlaut einnig 4 vinninga og það ætti að styttast í að hann komist þá inn á stigalista. Arnar Logi Kjartansson með 3,5 vinning hækkar um 12 stig. Örvar Hólm Brynjarsson og Guðmundur Orri Sveinbjörnsson enduðu með 2,5 og lækka á stigum.

Heilt yfir gott mót hjá íslensku keppendunum sem koma með fullt af elóstigum inn í „íslenska stigakerfið“ og flestir hafa lagt vel inn í reynslubankann góða!

Nánar um einstök úrslit að neðan:

Heimasíða aðal mótsins

Lilla Hasselbacken

- Auglýsing -