Hjörvar að tafli á Kviku Reykjavíkurskákmótinu. Mynd: IÞJ

Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) lauk FIDE Grand Swiss mótinu með tapi í lokaumferðinni. Hjörvar stýrði svörtu mönnunum gegn Alan Pichot (2630) frá Argentínu.

Pichot fórnaði peði snemma gegn Caro-Kann vörn Hjörvars. Hjörvar virtist vera að halda stöðunni og frumkvæði hvíts í skefjum en fann ekki rétta framhaldið í miðtaflinu.

Heilt yfir tefldi Hjörvar vel á mótinu en var óheppinn með úrslit í mörgum skákum. Hann mætir heitur til leiks á Evrópumót landsliða!

Alireza Firouzja varð sigurvegari mótsins og hann vann sér rétt til að tefla á Áskorendamótinu 2022 ásamt Fabiano Caruana. Báðir gerðu þeir jafntefli í lokaumferðinni.

Kvennamegin vann Lei Tingjie öruggan sigur og hún teflir á næsta áskorendamót kvenna.

Nánar má lesa um gang lokaumferðarinnar á Chess.com.

108 keppendur tóku þátt í opna flokknum og þar af voru 107 stórmeistarar! Hjörvar var nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -