EM landsliða heldur áfram í dag með 4. umferð í opnum flokki og kvennaflokki. Viðureignir dagsins hjá okkar fólki eru eftirfarandi:

Tilvalið að hefna fyrir tap knattspyrnulandsliðsins með því að hamra á Norður-Makedónum. Þeir hvíla óvænt fyrsta borðið og nú hefst íslenska upprisan!

Beinar útsendingar íslenska liðsins í opnum flokki

Tyrknesk sveit bíður okkar í kvennaflokki. Allt titilhafar og alþjóðlegi meistarinn Ekaterina Atalik á fyrsta borði. Íslensku stelpurnar eru undir í stigum á öllum borðum en ekki í baráttuanda!

Beinar útsendingar kvennaliðs á Chess24

Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma

Opinn flokkur á Chess-results

Kvennaflokkur á Chess-results

Skákvarpið verður á sínum stað og hefst ca. 15:30

- Auglýsing -