Spænska knattspyrnugoðsögnin Ivan Salgado lék fyrsta leikinn fyrir MC. Mynd: Erik Rosen/FIDE.

Magnús Carlsen (2855) vann sigur í áttundu skák heimsmeistaraeinvígisins gegn Ian Nepomniachtchi (2782) í dag. Staðan er nú 5-3.

Rússinn tefldi Rússneska vörn rétt eins og fimmtu skákinni. Carlsen kom á óvart í sjöunda leik þegar hann lék afar sjalgæfum leik. 7. Rd2

Áfram tefldist. 7…Rxd2 8. Bxd2 Bd6. Staðan er samhverf. Carlsen lék 9. 0-0 og nú lék Nepo 9…h5!?

.

Nú hugsaði MC sig um í rúmar 40 mínútur áður en hann lék 10. De1+. Bíður áskorandanum upp á leika 10…De7 og staðan er mjög jafnteflisleg. Rússinn lék hins vegar 10…Kf8 sennilega til að halda stöðunni gangandi sem svarað var með 11. Bb4.

Nepo varð hins vegar mjög stór mistök þegar hann lék 21…b5??.

Heimsmeistarinn lék 22. Da3+! Kg8 23. Dxa7 sem vinnur peð. Norðmaðurinn innbyrti svo sigurinn í 41 leik.

Hér er skákin í heild með skýringum Sam Shankland.

Áttunda skákin fer fram fram á morgun. Þá hefur sá norski hvítt. Mun kné fylgja kviði með hvítu mönnunum.

 

- Auglýsing -