Sex umferðum er lokið á alþjóðlega mótinu í Barcelona. Á ýmsu hefur gengið hjá Íslendingunum þremur frá því að við fjölluðum síðast um mótið eftir þrjár umferðir.
Helgi Áss Grétarsson tapaði í 4. og 5. umferð en gerði jafntefli í sjöttu umferð. Hann hefur 3½ vinning.
Guðmundur Kjartansson tapaði einnig í 4.-5. umferð en vann svo Páll Agnar Þórarinsson (2175) í 6. umferð. Gummi hefur 3 vinninga.
Páll gerði jafntefli við sterka andstæðinga í 4. og 5. umferð. Annars vegar alþjóðlega meistara og hins vegar stórmeistarar. Hann hefur 2 vinninga.
Sjöunda umferð fer fram í dag.
Alls taka 157 skákmenn frá 41 landi þátt í mótinu. Þar á meðal eru 36 stórmeistarar. Helgi er nr. 37 í stigaröð keppenda, Gummi nr. 51 og Páll nr. 117.
- Auglýsing -















