Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák fór fram í aðalútibúi bankans, Austurstræti 11, laugardaginn 11. desember Alls tóku 40 keppendur þátt en ekki var hægt að hafa mótið galopið að þessu sinni vegna 50 manna samkomutakmarkanna. Mótið er væntanlega það síðasta á núverandi keppnisstað þar sem bankinn opnar nýjar höfuðstöðvar á næsta ári.
Mótið var hins vegar vel skipað. Meðal keppenda voru sjö stórmeistarar og fimm alþjóðlegir meistarar.

Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringarsviðs, lék fyrsta leikinn fyrir Hjörvar Stein Grétarsson á fyrsta borði. Bergsteinn lofaði því í upphafsræðu sinni að beita fyrir því að mótið yrði áfram haldið í bankanum.

Hart var barist skiptust menn á að vera í forystu á mótinu. Helgi Áss Grétarsson var einn efstur með fullt hús eftir fimm umferðir. Hjörvar Steinn var efstur með 7½ vinning eftir 9 umferðir en tapaði þá fyrir Davíð Kjartanssyni. Helgarnir voru eftir fyrir lokaumferðina. Helgi Ólafsson vann þá Arnar Milutin Heiðarsson en Helgi Áss tapaði fyrir Braga Þorfinnssyni.
Helgi Ólafsson vann því mótið með 9 vinningum. Hjörvar Steinn varð annar með 8½ vinning. Helgi Áss, Guðmundur Kjartansson og Vignir Vatnar urðu í 3.-5. sæti með 8 vinninga.

Helgi sem er 65 ára er að öllum líkindum elsti keppandinn í skáksögunni til að vera Íslandsmeistari í skák í opnum flokki! Og væntanlega eru ekki mörg slík dæmi í öðrum íþróttagreinum!
Þetta er í sjöunda sinn sem Helgi verður Íslandsmeistari í hraðskák. Hann vann mótið fyrst 1974 og svo aftur 1976, 1977, 1979, 2002 og 2013. Sennilega er þarna á ferðinni annað met en ritstjóri dregur í efa að það hafi áður gerst að 47 ár hafi liðið á milli þess að menn hafi orðið Íslandsmeistarar í skák í opnum flokki. Já væntanlega ekki algengt í neinni annarri íþróttagrein!
Lenka Ptácníková hlaut kvennaverðlaun mótsins. Þar sem mótið var ekki öllum opið voru ekki hin hefðbundnu stiga- og aldurstengd verðlaun. Þessi í stað voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í samanburði við eigin skákstig. Þau hlutu þrír ungir og efnilegir skákmenn.
Ingvar Wu Skarphéðinsson (+370)- Benedikt Þórisson (+362)
- Markús Orri Jóhannsson (+348)
Skákstjórn önnuðust Gunnar Björnsson og Ólafur S. Ásgrímsson. Ingvar Þór Jóhannesson var tæknistjóri og annaðist beinar útsendingar og lýsingar.

Skáksambandið þakkar Landsbankanum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning við mótið. Mótið nú var átjánda Friðriksmótið.
Allar myndir nema frá upphafsleiknum eru teknar af Birgi Ísleifi Gunnarssyni.







































