Verðlaunahafar, Gunnar Gestsson og Hörður

Í dag 13 desember 2021 var jólaskákmót Vinaskákfélagsins haldið í Vin Dagsetur.

Tefldur voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. Fámennt en góðmennt var en 9 skákmenn mættu til leiks.

Elísa dóttir Halldóru Pálsdóttir forstöðukonu Vinjar lék fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman á móti Herði Jónassyni.

Elísa leikur fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman

Sigurvegari varð Róbert Lagerman með 6 vinninga eða með fullu húsi.

2 sæti varð Ólafur Thorsson með 5 vinninga.

3 sæti varð Sturla Þórðarson með 4 vinninga.

Aukavinningur 1 hlaut Jón Gauti Magnússon og fékk hann konfektkassa.

Aukavinningur 2 hlaut Björvin Kristbergsson og fékk hann skákbók að launum.

Í lok mótsins gæddu skákmenn sér á frábærru súkkulagðiköku í boði Vinaskákfélagsins.

Allir skemmtu sér vel og gekk mótið vel.

Sjá úrslit mótsins hér: Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -