Ungmennameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands hófst kl. 18. Alls eru 25 skákmenn skráðir til leiks.

Langflest sterkustu ungmenni landsins taka þátt og er mótið í ár óvenju vel skipað.

Ungmennameistarameistari ár hvert fær keppnisrétt í landsliðsflokki að ári. Í ljósi þess að Vignir Vatnar Stefánsson, áttundi stigmaður landsins, er meðal keppenda ákvað stjórn SÍ á sínum síðasta fundi að ef hann vinnur mótið fái sá sem lendi í öðru sæti jafnframt keppnisrétt í landsliðsflokki Íslandsmótsins í skák árið 2022. Jafnframt mun þriðja sæti fá sæti í landsliðsflokki ef Vignir og Símon Þórhallsson enda í tveimur efstu sætunum.

 

- Auglýsing -