Aronian var í banastuði í gær. Hann vann m.a. Fedoseev sem vann MC. Mynd: Anna Shtourman/FIDE.

Bandaríkjamaðurinn Levon Aronian (2740) er efstur eftir 12 umferðir á HM í hraðskák. Þetta er ekki rangt þjóðerni en armenska þjóðhetjan hefur skipt um ríkisfang og teflir framvegis fyrir Bandaríkin. Bibisara Assaubayeva (2285) frá Kaskakstan er efst í kvennaflokki eftir 9 umferðir. Lokaátökin hefst kl. 13 í dag.

Aronian efstur – Carslen í skiptu fjórða sæti

Ýmislegt hefur gengið í hraðskákinni þegar 12 umferðum af 21 er lokið.  Margir af þeim sigurstranglegri fyrir mótið hefur gengið ekki mjög vel og má þar nefna Carlsen, Nakamura, Firouzja og Nepomniachtchi. Stjarnan úr atskákinni Nodbirek Abdusattorov hefur aðeins rúmlega 50% vinningshlutfall.

Þess í stað eru frekar óvæntir menn í efstu sætunum.

Carlsen, Duda, Dubov, Nakamura og fleiri hafa 8½ vinning og geta því hæglega blandað sér í toppbaráttuna. Enda nóg eftir. Firouzja og Karjakin eru meðal þeirra sem hafa 8 vinninga og geta því líka blandað sér í baráttuna.

Staðan á Chess-Results

Assaubayeva efst kvenna

Bibisara Assaubayeva. Mynd: Chess.com

Bibisara Assaubayeva (2285), sem er aðeins 17 ár, er efst í kvennaflokki þegar níu umferðum af 17 eru lokið. Hún hefur 8 vinninga.

Staðan á Chess-Results

Ítarleg umfjöllun á Chess.com.

Í  HM í hraðskák (3+2) er tefld 21 umferð í opnum flokki en 17 umferðir í kvennaflokki.  Lokaátökin hefjast kl. 13 í dag.

Útsendingar Chess24 eru í umsjón Peter Leko og Jan Gustafsson.

Fyrir þá sem hafa aðgang að NRK í gegnum Símann eða Vodafone þá er hægt að fylgjast með mótinu beint þar.

- Auglýsing -