Það var mikil dramatík á lokadegi heimsmeistaramótsins í hraðskák í opnum flokki. Fyrst þurfti að seinka mótnu um klukkustund þar sem einn keppandi greindist með kórónuveiruna. Mótið fór í bráðabana og þar féll heimsmeistaratitilinn Maxime Vachier-Lagrave í vil. Bibisara Assaubayeva frá Kasakstan vann hins vegar öruggan sigur í kvennaflokki.
Það að halda mótið á þessum skrýtnum tímum og þurfta að skipta um mótsstað með aðeins 16 daga fyrirvara var mikið afrek hjá FIDE og pólsku mótshöldurunum.
Þrír efstir og jafnir – MVL vann bráðabanann
Dagurinn hófst með því að Nakamura tilkynnti að hann væri með Covid.
Wasn’t feeling well before the Rapid, told @FIDE_chess , got tested – was neg and I played. Needed to take a test today to fly tomorrow – it’s positive. I cannot finish the tournament and now am worried for all my opponents. Will be seeing you on stream doing commentary, I guess.
— Hikaru Nakamura (@GMHikaru) December 30, 2021
Mótsbyrjunni var frestað um klukkutíma. Margir keppendur þurftu í PCR-próf vegna brottfarar og sumir höfðu áhyggjur af því að komas tekki heim í tæka tíð fyrir áramótin.
It’s disappointing that players have to stand for hours(!) in freezing cold to get the basic pcr test done right before the games. pic.twitter.com/iTSjjpvzHZ
— Vidit Gujrathi (@viditchess) December 30, 2021
Alls reyndust þrír keppendur vera jákvæðir. FIDE hefur ekki gefið upp hverjir hinir tveir eru þótt augljóslega megi finna það með því að skoða mótstöflurnar.
Spennan í opnum flokki var gríðarlega spennandi. Aronian leiddi lengi vel, Dubov náði síðar forystunni en tapaði svo fyrir Firouzja í næstsíðustu umferðina.
Fyrir lokaumferðina voru sex keppendur efstir og jafnir. Aronian, Dubov, Artemiev, Duda, MVL og Firouzja. Carlsen var hálfum vinningi á eftir.
Reglur FIDE hljómuðu á þann veg að tveir efstu eftir oddastigaútreikning tefldu til þrautar um titilinn.
Giri og Dubov gerði stutt jafntefli. Ákvörðun sem kom verulega á óvart að hálfu Dubovs sem virtist hafa meiri áhyggjur að tryggja pening inn í bankanum en heimsmeistaratitilinn. Duda vann Artiemev, Firouzja lagði Aronian og svo tókst MVL að vinna sjálfan MC.
Þrír urðu efstir og jafnir. MVL, Duda og Firouzja. Vegna reglanna um tvo efstu í bráðabana var Firousja úr leik. Carlsen var fórnarlamb sömu reglana í atskákinni.
Some days you just don’t have it. I was nowhere close to the level I needed to be today. Good outcome for the public though, pretty sure no chess fan wanted to see Alireza in the playoffs anyway. Good luck to Duda and MVL!
— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) December 30, 2021
MVL vann svobráðanann 2-1 og varð því heimsmeistari í hraðskák, Duda annar og Firouzja þriðji.

Assaubayeva heimsmeistari kvenna

Bibisara Assaubayeva (2285), sem er aðeins 17 ára, vann sannfærandi sigur í kvennaflokki. Alexandra Kostenieuk (2475) varð önnur og Valentina Gunina (2452) þriðja.
Alexandra Kosteniuk, Bibisara Assaubayeva and Valentina Gunina were the medallists in both women’s events; Gunina won the bronzes, Kosteniuk won gold in the rapid and Assaubayeva in the blitz. Congratulations! #RapidBlitz pic.twitter.com/dwKowdO0rO
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 30, 2021
Návæmlega sömu konur og unnu verðlaun í atskákinni.
Ítarleg umfjöllun á Chess.com.















