85. Skákþing Akureyrar hefst sunnudaginn 16. janúar kl. 13.00. Teflt verður í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni við Skólastíg.
Fyrirkomulag mótsins mun að nokkru leyti mótast af fjölda þátttakenda, en stefnt er að því að tefla 7-9 umferðir. Sigurvegarinn mun hljóta sæmdarheitið „Skákmeistari Akureyrar 2022“. Mótið er öllum opið, bæði ungum sem gömlum.
Auk aðalmótsins verður haldið sérstakt mót fyrir yngri iðkendur, f. 2006 og síðar. Það hefst síðar í mánuðinum og verður auglýst sérstaklega.
Umhugsunartími verður 90 mínútur á skákina, auk þess sem 30 sekúndur bætast við tímann fyrir hvern leik (90+30).
Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Þátttaka er ókeypis fyrir þá unglinga sem greitt hafa æfingagjald.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Skráning er í netfangið askell@simnet.is eða á facebook síðu Skákfélags Akureyrar. Einnig er hægt að skrá sig á skákstað eigi síðar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.
Dagskrá í verður sem hér segir: (ath. að fjöldi umferða er óviss þar til lokaskráning liggur fyrir.)
- umferð sunnudaginn 16.janúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 20.janúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 23.janúar kl. 13.00
- umferð sunnudaginn 30.janúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 3.febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 6.febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 10.febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 13.febrúar kl. 13.00 (til vara)
- umferð fimmtudaginn 17.febrúar kl. 18.00 (til vara)
Þegar fjöldi keppenda liggur fyrir getur mótsstjóri gert minniháttar breytingar á dagskrá og fyrirkomulagi til að auðvelda framkvæmd mótsins.
Þátttaka í mótinu er öllum heimil en Skákmeistari Akureyrar getur aðeins sá orðið sem er búsettur á Akureyri og/eða er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.
Núverandi Skákmeistari Akureyrar er Rúnar Sigurpálsson.
Af heimasíðu SA
















