Vegna útbreidds smits í samfélaginu og hvatningar til fólks að hafa hægt um sig, hefur það orðið að samkomulagi að fresta Skákþingi Akureyrar, sem hefjast átti í dag 16.janúar, til sunnudagsins 30. janúar. Dagskrá mun þá færast aftur um tvær vikur, a.m.k. meðan annað verður ekki tilkynnt.

Aðrar breytingar eru ekki áformaðar að sinni. Æfingar barna og unglinga halda áfram sem áður og stefnt að Akureyrarmóti í yngri flokkum þann 28. og 29. janúar.

- Auglýsing -