Það kom loks að því að MC ynni Anish Giri í kappskák. Mynd:Lennart Ootes/Tata Steel Chess.

Heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2865) vann Anish Giri (2772) í fyrsta skipti í kappskák í  2. umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær í afar vel tefldri skák. Richard Rapport (2763) lagði Jorden Van Foreest (2702) að velli. Öðrum skákum lauk með jafntefli.

Shakhriyar Mamedyarov (2767) stal senunni í gær þegar hann fórnaði peði í þriðja leik gegn Rússanum Andrey Esipenko (2714). Það dugði ekki til sigurs en skákinni lauk með jafntefli.

Normaðurinn er efstur með 1½ vinning áamt Santosh Vidit (2727).

Volodar Murcin (2515) er efstur í áskorendaflokki. Með fullt hús. Með góðri frammistöðu tryggir hann sér lokaáfanga að stórmeistaratitli. Verður Murcin meðal þátttakenda í Kviku Reykjavíkurskákmótinu 2021?

Volodar Murcin er mikið efni. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel Chess.

Þriðja umferð fer fram í dag. Carlsen mætir Pólverjanum unga Jan-Krzysztof Duda (2760).

Nánari umfjöllunum um aðra umferð má finna á Chess.com.

- Auglýsing -