Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) tapaði fyrir tékkneska alþjóðlega meistararanum Karel Malinovsky (2473) í 2. umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær.
Hannes hefur 1 vinning og er í 3.-8. sæti. Þriðja umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við þýska alþjóðlega meistarann Franz Braeuer (2435).
Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15)
- Auglýsing -
















