Séð yfir skáksalinn. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel.

Shakhrieyar Mamedyarov (2767) og Richard Rapport (2763) unnu sínar skákir í fimmtu umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær. Þeir félagarnir eru efstir ásamt Vidit Gujrathi (2727) með 3½ vinning.

Magnús Carlsen (2865) og Nils Grandelius (2672) gerðu jafntefli í hörku skák.

Nánari umfjöllun á Chess.com

Sjötta umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við Rapport.

- Auglýsing -