Reykjavíkurleikarnir

Skák verður hluti af Reykjavíkurleikunum í ár (Reykjavik International Games). Landskeppni ÍslandsDanmerkur, Noregs og Svíþjóðar verður á RÚV sunnudaginn 30. janúar 2021 milli kl. 13 og 16.

Laugardaginn 29. janúar fer Reykjavíkurhraðskákmótið fram  í Laugardalshöllinni.  Þar verður einnig teflt á frá kl. 13 til: 16.

Fjögurra landa keppnin

Fer fram sunnudaginn, 30. janúar. Teflt verður í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin verður í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar og Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur.

Um er að ræða útsláttarkeppni. Þátt taka auk Íslands, Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Karl og kona eru í hverju liði. Ekki er búið að draga hverjir mætast í undanúrslitum.

Tefldar verða tvær atskákir í hverri viðureign, samtals fjórar skákir.  Verði jafnt 2-2 verður teflt til þrautar með bráðabanafyrirkomulagi. Dregið verður um hvort bráðabani verði á karla- eða kvennaborðinu.

Fulltrúar þátttökuþjóðanna eru:

Ísland

Fulltrúar Íslands eru stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson og Lenka Ptácníková stórmeistari kvenna.

Hjörvar er stigahæsti skákmaður landsins og núverandi Íslandsmeistari og Lenka er þrettánfaldur Íslandsmeistari kvenna og stigahæsta skákkona landsins.

Danmörk

Fulltrúar Dananna eru stórmeistarinn Mads Andersen og Ellen Fredericia Nilssen FIDE-meistari kvenna.

Mads er þrefaldur danskur meistari (síðast 2020) og fastamaður í landsliði Danmerkur.

Ellen er aðeins liðlega tvítug. Hún vann danska kvennameistaramótið þegar hún var aðeins 15 ára. Í fyrra varð hún unglingameistari Danmerkur (u20) í opnum flokki og þar með fyrsta konan til að vinna þann titil.

Noregur

Norsku fulltrúarnir eru stórmeistarinn Lars Oskar Hauge og Monika Machlik.

Lars er nýjasti stórmeistari Noregs, sá sautjándi. Hann tefldi með Noregi á EM landsliða í fyrra.

Monika er 24 ára en hefur engu síðar verið fastamaður í norska kvennalandsliðinu síðan 2013. 

Svíþjóð

Fulltrúar Svíþjóðar eru stórmeistarinn Erik Blomquist og Viktoria Johansson. Erik er tvöfaldur sænskur meistari (síðast 2019) og fastamaður í sænska skáklandsliðinu. Hann varð Norðurlandameistari 2016.

Viktoria er aldurforsetinn, 47 ára. Hún hefur verið fastamaður í sænska landsliðinu síðan 1990 og hefur teflt 12 sinnum fyrir hönd þjóðar sinnar. Hún varð Norðurlandameistari kvenna 1993.

Reykjavíkurhraðskákmótið

Hefst kl. 13 og teflt verður í Laugardalshöllinni.  Um það bil 40 keppendur taka þátt. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Allir skákmennirnir nefndir hér að framan taka þátt og auk þeirra flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Má þar nefna stórmeistarana Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson, Þröst Þórhallsson, Guðmund Kjartansson og Braga Þorfinnsson.

Nánast allar sterkustu íslensku skákkonurnar taka jafnframt þátt og má þar nefna landsliðskonurnar Guðlaugu ÞorsteinsdótturJóhönnu Björg Jóhannsdóttur, Lisseth Acevedo Méndez og Hrund Hauksdóttur.

Allir skákir mótsins verða sýndar beint auk þess sem þeim verður streymt og Ingvar Þór Jóhannesson verður með þráðbeina lýsingu!

Keppendalisti á Chess-Results

Tenglar á beinar útsendingar væntanlegir.

 

 

- Auglýsing -