Þeir félagar Hilmir Freyr Heimisson og Alexander Oliver Mai sitja nú að tafli í IM flokki í Serbíu. Um er að ræða hálfgert hraðmót þar sem 9 umferðir eru kláraðar á 7 dögum.

Hilmir hefur farið vel af stað og er með 2,5 vinning eftir þrjár umferðir. Tvöföld umferð var tefld í dag. Hilmir vann stigalágan skákmann í fyrstu umferð en í dag gerði hann jafntefli við GM Dragan Kosic og lagði IM Anastasios Pavlidis. Góður dagur hjá Hilmi!

Alexander hefur 1,5 vinning. Hann tapaði gegn Kosic í gær en fékk 1,5 vinning í dag og gerði gott jafntefli við FM Stankovic (2376).

Vignir Vatnar Stefánsson átti að vera að tefla í GM flokki í Serbíu en hann lenti í hremmingum á Ítalíu og missir allavega af fyrsta mótinu og líklega af móti númer tvö líka.

Skákir Hilmis Freys

Skákir Alexanders

Chess-Results

- Auglýsing -