Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) er svo sannarlega með pálmann í höndunum á Skákþingi Reykjavíkur með fimm vinninga eftir fimm umferðir.
Í fimmtu umferðinni lagði Hjörvar að velli sinn helsta keppinaut, alþjóðlega meistarann Davíð Kjartansson (2304) í 90 leikja háspennu skák! Hjörvar stýrði svörtu mönnunum og eftir miklar tilfærslur hafði hann betur í flækjunum og stýrði vinningnum heim í hróksendatafli peði yfir.
Sá eini sem nær að fylgja Hjörvari eftir er hinn ungi Arnar Milutin Heiðarsson sem heldur áfram að koma á óvart. Arnar hefur unnið allar tefldar skákir sínar en hann tók hjásetu í annarri umferð. Hann lagði Gauta Pál Jónsson að velli í fimmtu umferðinni og eins og áður virtist seiglan og baráttuþrekið til staðar hjá Arnari. Hvort það dugi til gegn Hjörvari verður tíminn að leiða í ljós!
Nokkuð ljóst er að Hjörvar og Arnar mætast í næstu umferð og þar sem aðrir stigaháir keppendur eru komnir einum og hálfum vinningi á eftir Hjörvari er líklegt að Arnar sé sá eini sem getur komið í veg fyrir sigur Hjörvars á mótinu.
Sjötta umferðin fer fram sunnudaginn 13. febrúar og hefst klukkan 13:00.
















