Þrátt fyrir að ein umferð sé ótefld er ljóst að Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) verður hlutskarpastur á Skákþingi Reykjavíkur.
Hjörvar er ekki búsettur í Reykjavík og í Taflfélagi Garðabæjar þannig að titilinn Skákmeistari Reykjavíkur er í húfi í lokaumferðinni.
Hjörvar hefur 8 vinning af 8 mögulegum og enginn getur náð honum að vinningum. Næstur Hjörvari en 2 vinningum á eftir er Benedikt Briem með 6 vinninga af 8. Benedikt vann glæsilegan sigur á Davíð Kjartanssyni í 8. umferðinni en það dugir þó skammt.
Hjörvar á sigurinn vísan en Benedikt ásamt Ingvari Wu og Sverri Hákonar eru „gróðakóngar“ mótsins.
Lokaumferðin skipta litlu máli á efsta borði en þar mætast Benedikt og Hjörvar. Davíð Kjartansson og Gauti Páll Jónsson treysta á sigur hjá Hjörvari en þá berjast þeir ásamt Sigurbirni Björnssyni um 2. sætið á mótinu en jafnframt titilinn Skákmeistari Reykjavíkur.
Úrsilt ráðast í lokaumferðinni á sunnudag kl. 13:00!

















