Íslendingarnir þrír í Serbíu áttu þrjár lengstu skákir dagsins og þar á meðal tefldi Alexander Oliver 112 leikja skák! Úrslit dagsins voru upp ofan og það var aðeins Hilmir Freyr Heimisson sem vann sína skák og Alexander Oliver gerði jafntefli.

Vignir Vatnar Stefánsson er ekki lengur í áfangaséns á þessu GM móti en ætti að komast vel í gang fyrir komandi átök. Vignir teygði sig of langt gegn gamla brýninu GM Branko Damljanovic (2464). Vignir vann skiptamun en einhvern veginn náði sá gamli að klóra sig inn í skákina og hafði loks betur. Svekkjandi tap!

Vignir hefur 4 vinninga af 7 eftir umferð dagsins

Alexander Oliver tefldi sannkallaða maraþonskák! Okkar maður var að reyna að kreysta endtafl með „mislinga“ en tókst það ekki að þessu sinni. Andstæðingurinn var Indverjinn Ramu (2117)

Alexander hefur 3 vinninga af 7.

Hilmir Freyr Heimisson vann skák sína í dag gegn Yonal Timur (1936). Hilmir beytti tískuafbrigði í Caro-Kann vörn og komst í endatafl peði yfir þar sem hann gerði engin mistök í úrvinnslunni.

Hilmir hefur 3,5 vinning af 7 og er að eiga rólegt mót eftir frábært fyrsta mót þar sem hann tryggði sér IM titilinn.

Tvær umferðir eru eftir og svo hefst einn flokkur til viðbótar að loknu móti hjá strákunum.

GM Flokkur Vignis á Chess-Results

IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

- Auglýsing -