Hilmir Freyr Heimisson virðist vera kominn aftur í gang eftir smá „áfangaþynnku“ í öðru mótinu. Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli í skák sem hann hefði væntanlega viljað vinna en Alexander Oliver Mai tapaði sinni skák.
Vignir hafði hvítt á Vinay Kumar Matta (2305) og mátti sætta sig við jafntefli eftir 50 leiki. Skák sem Vignir verður að vinna ætli hann sé stórmeistaraáfanga á mótinu. Miði er möguleiki og einhverskonar „hreinsun“ á rest ætti að gefa sénsinn ennþá en erfitt verður.

Hilmir Freyr Heimisson gerði jafntefli í skák dagsins gegn GM Milko Popchev (2193). Sá hefur sannarlega hrunið í stigum!

Alexander Oliver tapaði sinni skák gegn GM Miroslav Markovic (2286).

Flokkarnir halda áfram á morgun, Vignir og Hilmir mæta stórmeisturum. Vignir fær Branko Damljanovic en Hilmir mætir Zlatko Ilincic.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results















