Jóhann Hjartarson vann góðan sigur á bandaríska stórmeistaranum Hans Niemann (2637) í fyrri umferð dagsins á Kviku Reykjavíkurskákmótinu. Jóhann er nú efstur ásamt þremur öðrum skákmönnum.

Daninn Mads Andersen lagði Pólverjann Jarmula sem er að missa flugið eftir sterka byrjun. Pragganandhaa lagði yngsta stórmeistara heims, A.Mishra og loks lagði Max Warmerdam hinn enska Simon Williams að velli. Þessir fjórir leiða mótið.

Jóhann mætir Max Warmerdam í seinni umferð dagsins með hvítu. Íslendingar náðu annars þokkalegum úrslitum í umferðinni. Hjörvar Steinn vann sína skák og Héðinn gerði annað traust jafntefli við D Gukesh. Briem-bræðurnir voru báðir að leggja stigaháa andstæðinga að velli en misstu báðir niður vinningsstöður, annar í jafntefli en hinn í tap.

Mótið á Chess-Results

Fyrstu 3 umferðir á PGN

Myndir frá mótinu (ÞM)

Útsending 6. umferðar

- Auglýsing -