Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
——-
Torfi Leósson sigraði á þriðjudagsmóti T.R. sem fram fór sl. þriðjudag 26.4. Vann hann alla andstæðinga sína fimm að tölu og sýndi að lengi lifir í gömlum glæðum.
Torfi er einn reynslumesti þjálfari T.R en hann kennir börnum mannganginn og fyrstu skrefiin í byrjendaflokki hjá T.R.
Annar skákkennari varð annar en Arnar Ingi Njarðarson hlaut 4 vinninga en hann sinnir skákkennslu hjá Skákdeild Breiðabliks. Hafliði Hafliðason varð þriðji með 3 vinn. af 5, hæstur á stigum þeirra sem hlutu 3 vinn.
Keppendur voru 19 og skákstjóri var Ríkharður Sveinsson













