Rúnar og Andri skeggræða að loknu einvígi. Mynd: Heimasíða SA

Seinni skák þeirra Rúnars og Andra Freys Björgvinssonar um Akureyrarmeistaratitlinn lauk með sigri Rúnars. Fyrri skák þeirra félaga lauk með jafntefli og ef aftur hefði orðið jafnt í gær hefði þurft að útkljá titilbaráttuna í styttri skákum, en til þess kom ekki. Til upprifjunar minnum við á að þeir félagar urðu jafnir og langefstir á Skákþingi Akureyrar sem hófst í janúarlok.

Rúnar varð einnig meistari á síðasta ári og mun þetta vera í sjötta sinn sem hann vinnur þennan eftirsótta titil. Hann er hefur einnig orðið hraðskákmeistari Akureyrar þessi tvö ár og reyndar unnið flest mót sem hann hefur tekið þátt í á vegum félagsins undanfarin ár.

Við óskum honum til hamingju með titilinn.

Myndin með fréttinni er tekin rétt eftir skákina.

- Auglýsing -