Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 heldur áfram á sunnudaginn 8. nóvember með undanúrslitum. Taflmennska hefst kl. 15:00. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport og einnig er hægt að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.

Auk Símans styðja Lengjan og Collab við mótshaldið.

Fyrri viðureign dagsins er GM Jóhann Hjartarson gegn IM Aleksandri Domalchuk-Jonasson. Að henni lokinni mætast GM Vignir Vatnar Stefánsson og IM Hilmir Freyr Heimisson. Sá sem fyrr nær 3½ vinningi vinnur; verði jafnt er teflt til þrautar.

Skákskýrendur verða stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson og FIDE-meistarinn Birkir Ísak Jóhannsson.

Sigurvegarar átta manna úrslita

  • GM Jóhann Hjartarson – FM Sigurbjörn Björnsson 3,5–1,5
  • IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – GM Helgi Áss Grétarsson 4–3
  • GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Jón Kristinn Þorgeirsson 4–2
  • IM Hilmir Freyr Heimisson – GM Bragi Þorfinnsson 4–0

Mótið er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans. Sigurvegarar undanúrslita mætast í úrslitum 15. nóvember.

Verðlaunafé mótsins er 125.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 75.000 kr. fyrir annað sæti og 25.000 kr. fyrir þriðja og fjórða sæti.

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn