Skjólbrekka í Mývatnssveit

Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl og Skákfélagið Goðinn standa saman að opnu alþjóðlegu skákmóti dagana 19-22 nóvember 2026 sem fram fer í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Mótið er sett upp á sama hátt og 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í mars árið 2025 sem þóttist heppnast vel og því er nú leikurinn endurtekinn. Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl er aðal styrktaraðili mótsins og heitir því mótið eftir því. Skráning í mótið var opnuð 1. mars sl. og verður opin til kl 13:00 fimmtudaginn 19. nóvember. Parað verður í 1. umferð kl 16:00 þann sama dag.

Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE. ATH. Ef fleiri en 64 skákmenn skrá sig í mótið verður því skipt skipt í tvo stigaflokka, 2000+ elo og -2000 elo. Miðað verður við stigalista FIDE 1. nóvember 2026. Titil skákmenn með 1900-1999 elo geta þó valið hvorn flokkinn sem er.

Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.

Beinar útsendingar
Allir skákir í mótinu verða sendar út í beinni útsendingu á lichess.org

Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr

Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum

Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr

Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr

Þátttökugjöld 

kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.

Mótsstaður er Félagsheimilið Skjólbrekka í Mývatnssveit
Félagsheimilið Skjólbrekka stendur við bakka Mývatns og er skammt Sel-Hóteli sem er staðsett um 700 metra í burtu. Það er um 60 mínútna akstur frá Akureyri í Skjólbrekku. Það er 6 klukkustunda akstur frá Reykjavík í Skjólbrekku.

Gistimöguleikar.

Sel Hótel er orðið fullbókað dagana sem mótið fer fram og sömuleiðis Gistiheimilið á Skútustöðum. En það er nægt framboð á gistingu í Mývatnssveit sem hægt að skoða ma. á visitmyvatn.is eða hér.

Skrá sig í mótið  Athugið að staðfesting á skráningu í mótið er gerð þegar þátttökugjald hefur verið greitt með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan

Greiðslutengill, Fullt gjald 10.000 ISK

Greiðslutengill fyrir 18 ára og yngri. 7000 ISK.

Mótið á chess results

Mótshaldarar bjóða upp á rútuferð fram og til baka frá BSÍ – Skjólbrekka – BSÍ. Hér er hægt að lesa meira um þá ferð og skrá sig í ferðina hér Skráningu í rútuferðina loka á hádegi miðvikudaginn 18. nóvember.

Allar nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalsteinsson í síma 8213187 eða lyngbrekku@simnet.is

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn