Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna, lauk þátttöku sinni á Brno Open 2026, IM flokki í Tékklandi í dag. Mótið var níu umferða mót, allir við alla, með meðaltalsstigin 2243 og fór fram 31. október – 7. nóvember.
Lenka endaði í 7. sæti af tíu keppendum með þrjá vinninga (1 sigur, 4 jafntefli og 4 töp). Árangurinn samsvaraði 2135 stigum og hækkaði hún um 9 stig fyrir hana.
Helstu úrslit Lenku:
- Sigur á Samarth Rajesh Ragavan (USA, 2224)
- Jafntefli við Kush Devnani (IND, 2227), IM Adarsh Tripathi (IND, 2269), FM Bronislav Vymazal (CZE, 2330) og Radoslaw Sliwerski (POL, 2066)
IM Jake Shanty vann mótið með yfirburðum, hlaut 8½ vinning af 9 mögulegum!
Nánari upplýsingar og skákir má finna á chess-results.com.
Heimasíða mótsins og Czech Tour


















