Héðinn Steingrímsson hefur byrjað vel á NM í skák í Finnlandi og hefur 2½ vinning eftir 3 umferðir. Alexander Oliver Mai vann í gær í Sevilla.
NM í skák
Önnur og þriðja umferð fóru fram í gær.
Héðinn Steingrímsson (2513) hlaut 1½ vinning í skákum gærdagsins. Hann vann Svíann Seo Jung Hyun (2102) í fyrri skák dagsins. Í þeirri seinni gerði hann jafntefli við úkraínska alþjóðlega meistarann Alexander Reprintsev (2353). Héðinn hefur 2½ vinning og er í 7.-23. sæti.
Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 9. Þá teflir Héðinn við finnska FIDE-meistarann Markus Joukhi Yrjö (2280).
Norðurlandamótið í skák fer fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið er haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins. Þátt taka 138 skákmenn frá 14 löndum. Þar af eru 10 stórmeistarar og 9 alþjóðlegir meistarar. Tefldar eru 9 umferðir. Héðinn er áttundi í stigaröð keppenda og næststigahæstur Norðurlandabúa.
Björgvin Jónas Hauksson (1739) í teflir í öldungaflokki (50+) og er ekki kominn á blað.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast ýmist kl. 7, 9 eða 14).
Ciudad de Sevilla
Fimmta umferð fór fram í gær.
Alexander Oliver Mai (2159) vann í gær stigalágan Spánverja (1756) og hefur 3 vinninga.
Sjötta umferð fer fram í dag.
Þátt taka 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af eru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 16.-23. júlí. Tefldar eru 9 umferðir.
















