Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!
Í dag kynnum við til leiks Tinnu Kristínu Finnbogadóttur sem er að tefla á sínu fjórða ólympíuskákmóti
Nafn
Tinna Kristín Finnbogadóttir
Félag
Fjölnir
Aldur
31 árs
Uppáhaldsskákmaður og skákkona?
Uppáhalds skákkona er Guðfríður Lilja, en erfitt er að finna betri fyrirmynd en hana. Skákmaður, pabbi.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Við stelpurnar erum búnar að vera duglegar að taka æfingar í vetur, bæði með landliðsþjálfara og svo höfum við verið að vinna í hróksendatöflum, sem hefur líka verið liður í andlega undirbúningnum mínum- ef ég kann hróksendatöfl hætti ég kannski að kvíða fyrir þeim. Er núna að vinna í byrjunarundirbúningi, en þar sem ég asnaðist til að fá Covid í lok júní er ég fyrst og fremst að reyna að ná mér eftir það.
Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Segjum 80?
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður fjórða mótið mitt.
Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?
Ég hef að sjálfsögðu pælt mikið í þessu, en hef ekki svar.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Held að heimamenn séu til alls líklegir.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Hef verið að horfa á Only Murders in the Building ásamt því að endurhorfa á Modern Family. Ég hef reyndar verið mjög dugleg að horfa á sjónvarpsefni í vetur, en þegar maður er að læra kvikmyndafræði telst það bara heimanám.
Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?
Nei
Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:
Ég ætlaði að koma andstæðingi mínum í Trömsö 2014 á óvart með því að leika Skandinavíska leiknum í fyrsta sinn, mjög sátt með mig yfir því að eyðileggja undirbúning andstæðingsins. Hún hafði alltaf teflt það sama á móti skandinavanum og ég mætti vel undirbúin, vel ánægð með sjálfa mig. En hún lét sér hvergi bregða þegar ég lék 1… d5, í stað Sikileyjavarnar og tók ekki d-peðið eins og hún var vön heldur lék 2. e5. Ég varð mjög súr yfir því að hún kæmi mér á óvart á móti, en lét ekki deigan síga og ætlaði að vera sú sem kom mest á óvart og lék því 2.. d4. Skemmst er frá að segja að ég vann, og er því mjög ánægð með þennan byrjunarslag.
Hvernig finnst þér indverskur matur?
Mjög góður.
Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?
Ég bara veit það ekki.
Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?
Lífs eða liðinn? Skylst að Ghandi sé frekar þekktur nefnilega og kannski erfitt að slá honum við, en af lifandi þá mögulega Priyanka Chopra sú þekktasta sem ég man eftir.
Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?
Kasparov, Tal og Judit Polgar- af engri sérstakri ástæðu.
Ólympíufararnir
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
- GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
- GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
- WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
- WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
- GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
- IA Omar Salama (skákstjóri)
- Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
















