Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands

Forseti SÍ, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, mætir til Samarkand. Að þessu sinni í öðru hlutverki en sem sem skákkona.

Nafn og hlutverk

Forseti SÍ og fararstjóri

Gukesh eða Sindarov?

Ég held að Sindarov taki þetta

Félag?

Haukar

Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?

Ég er almennt í kaffinu og ég held við Helgi drekkum jafn mikla mjólk með kaffinu, sem sagt enga!

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Hef aðallega verið að sinna skipulagningu ferðarinnar í þetta sinn. Hef svo verið að kynna mér pólitíkina fyrir forsetakosningar FIDE.

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?

Það yrði að vera eitthvað annað lið en Arsenal sem er í ensku úrvalsdeildinni.

Bókin á náttborðinu?

Er á milli bóka eins og er en kláraði þriðju Dune bókina fyrir stuttu

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta ætti að vera sjöunda Ólympímótið mitt.

Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?

Kjólar (er það ekki gefið?)

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)? 

Er voða lítið að horfa á þessa dagana en hef kveikt á Buffy in á milli.

Hversu leiðinleg er rapptónlist?

Það fer verulega eftir hverju lagi fyrir sig.

Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?

Biskupinn er að mínu mati bestur en maður má ekki vanmeta góðan riddara!

Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?

Ég ætla að segja topp 5

Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?

Þau eru einu löndin sem eru tvöfalt landlukt í heiminum (já, ég gúgglaði íslenska orðið yfir double landlocked).

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki? 

Úsbekistan í opnum og Indland í kvennaflokki.

Buettner, Rosenstein eða Turlov?

Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með þessari baráttu sem er engan vegin búin en eins og er þá held ég að Turlov eða Rosenstein taki þetta. Alls ekkert hinsvegar.

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?

Alveg pottþétt í einhverjum flokkum, Abdusattarov kemur fyrstur upp í hugan, en er ekki viss um stóra titilinn.

Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?

Það er auðvitað alltaf gaman að vera í kringum alla þessa sterku skákmenn og hitta vini. Persónulega hef ég alltaf átt erfiðast með að halda matarlyst uppi þegar ég hef verið að tefla. Bæði er maturinn oft ekki upp á marga fiska og álagið mikið.

Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?

Í lífinu hugsa ég að foreldrarnir hafi verið mínar helstu fyrirmyndir. Í skák hefur Guðfríður Lilja fyrrum forseti alltaf verið einhver sem ég hef horft upp til.

Þitt markmið á mótinu?

Að styðja liðin eftir bestu getu!

Að lokum?

Áfram Ísland!

Ólympíufararnir

Opinn flokkur

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson
  2. IM Hilmir Freyr Heimisson
  3. GM Jóhann Hjartarson
  4. GM Hannes Hlífar Stefánsson
  5. GM Guðmundur Kjartansson
  6. GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)

Kvennaflokkur

  1. WGM Lenka Ptácníková
  2. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  3. WFM Guðrún Fanney Briem
  4. WCM Iðunn Helgadóttir
  5. Hrund Hauksdóttir
  6. FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)

Aðrir

- Auglýsing -