Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks reynsluboltann og goðsögnina Hannes Hlífar Stefánsson.
Nafn og hlutverk
Hannes Hlífar Stefánsson, teflir í mótinu
Gukesh eða Sindarov?
Sindarov
Félag?
KR
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Kaffi, litla mjólk takk fyrir. Komdu með þetta eftir svona hálftíma svo eftir 40 leiki þá væri fínt að fá kaffi aftur!
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Hljóp hálft maraþon 22. ágúst, var á Spáni í tvo mánuði og einnig verið með æfingar með landsliðinu.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Segja Liverpool
Bókin á náttborðinu?
UFO 2 eftir Gunnar Dan
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Farið síðan 1992 fyrir utan Covid-árið.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Misjafnt
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Minnir að það hafi verið heimildamynd um Trump. Sumir segja að hann sé geimvera!
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Ógeðslega leiðinleg
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Biskupaparið er skemmtilegast
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Minnir að þeir hafi verið í 2. sæti 1992, var það ekki?
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Nei
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Eigum við að segja Kínverjar eða Indverjar?
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Hverjir eru það?
Uppáhaldsskák?
Orðinn frekar þreytt spurning!
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Ekki svo ég muni!
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Oftast er maturinn orðinn þreyttur. Gott að vera í góðu veðri.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Jesú, hann breytti vatni í vín!
Þitt markmið á mótinu?
Tefla vel!
Að lokum?
Eru gallabuxur leyfðar?
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill
















