Við höldum áfram með Ólympíufarinn fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Í dag er FIDE-meistarinn og FIDE-þjálfarinn Ingvar Þór Jóhannesson kynntur til leiks!
Nafn og hlutverk
Ingvar Þór Jóhannesson liðsstjóri kvennaliðs Íslands
Gukesh eða Sindarov?
Báðir flottir, Gukesh í öldudal en má ekki vanmeta hann. Mér finnst Sindarov samt bara flottari týpa þannig að ég segi að hann vinni og held með honum.
Félag?
Eitt elsta og virtasta taflfélag í heimi, það er þannig!
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Kaffi ef Collab er ekki í boði, hef ekki kynnt mér mjólkurmagn Helga Ólafssonar er kemur að kaffidrykkju.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Svipað og venjulega, reyna að hafa hugmyndir í byrjunum á hreinu og svo virðist andlegi þátturinn fara vaxandi af einhverjum orsökum.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Hull
Bókin á náttborðinu?
1000 Checkmate Combinations eftir Victor Henkin, Viggi Vatt er búinn að bjóða mér fúlgur fjár fyrir bókina en ég bugast ekki!
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Öll síðan 2014 í ýmsum hlutverkum
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Immodium
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Klovn….minnir að Frank hafi kúkað á stofugólfið…
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Rapptónlist er geituð ef þú hlustar á réttu listamennina. Xzibit er minn maður eins og flestir vita!
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Týpísk tvíræð GB spurning. Svarið er eins og hjá Páli Þórarinssyni, góður riddari gegn slæmum biskup.
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Ég heyrði svarið af þessari útundan mér og það er 2. sætið en hefði giskað á 5. sætið sem var einhver minnisvilla.
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Ég virðist hafa heyrt ansi mörg svör óvart og veit því svarið hér en ég hefði ekki vitað það!
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Baráttan verður Indland gegn heimamönnum í Úzbekistan í opna en Indverjar taka aftur kvennaflokkinn þar sem Kína er ekki með nálægt sínu sterkasta liði
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Ég held ég haldi með Rosenstein en held að Turlov vinni
Uppáhaldsskák?
Alltof margar, segi Helgi gegn Levitt eða Lputian gegn Helga ef Helgi hefði náð að klára þá snilld! Þetta ætti að vinna mér inn kaffibolla í ferðinni!
Helgi lék hérna 18. Hxe6!
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Rustam Kazimdzhanov náði að vinna eitt af þessum bingó mótum á sínum tíma. Hélt reyndar að hann væri Kazaki í einhvern tíma, veit ekki hvaðan það kom!
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Bara skemmtilegt, þetta er skákveisla!
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Foreldrar alltaf fyrirmynd númer eitt, á enga sérstaka fyrirmynd í skák þó maður reyni að móta stílinn eftir ákveðnum mönnum.
Þitt markmið á mótinu?
Gera okkar besta, enda ofar en stiga gera ráð fyrir að lágmarki, hafa gaman og bæta okkur.
Að lokum?
Áfram Helgi

















