Við höldum áfram með Ólympíufarinn fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Það er fulltrúi okkar meðal skákstjóra mótsins. Einn okkar allra besti maður – Jón Úlfur Hafþórsson – sem er ekki bara einn aðalskákstjóri Íslands heldur einnig Svíþjóðar.

Nafn og hlutverk
Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri.

Gukesh eða Sindarov?
Gukesh veikist á seinustu stundu, Nepo mun einhvernveginn taka við, Sindarov sigrar mótið en Nepo sigrar blaðamannafundinn.

Félag?
Hættuleg spurning rétt fyrir deildó, sem óhlutdrægur skákstjóri get ég ekki sagt neitt… hóst hóst áfram Fjölnir hóst hóst.

Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Kaffi er eina rétta svarið, en nú er ég hræddur um að það eina sem ég fylgist með á þessu blessaða móti er kaffibollinn hans Helga.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Held í NM skólasveita helgina fyrir ÓL, nokkrir skákstjórafundir, og er nokkuð viss um að móðurmál mitt sé reglugerð FIDE eftir allan þennan lestur.

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Ég bara hef ekki hugmynd. Eitt af liðunum sem ekki heita Arsenal?

Bókin á náttborðinu?
Ég trúi varla að ég sé að segja þetta, en útprentaðir bæklingar af öllum reglugerðum sem tengjast ÓL… Held að Norse Mythology eftir Neil Gaiman er þarna lengst undir búnkanum.

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður í fyrsta sinn. Æsispenntur.

Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Síðustu þrjú árin hef ég alltaf tekið með mér “Mastering Opening Strategy” eftir Johan Hellsten í hvert einasta flug. Ef einhver vill byrjunar-tips, þá hefur mér en ekki tekist að opna bókina.

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Verður maður ekki að taka smá “Bíó represent” á þetta. Fór í bíó á “The Odyssey”, djöfulli gaman að þessu.

Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Áts 😭 Þetta er ekki mjög Gens Una af þér Gunni 🤭

Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Hver annar en guðinn sjálfur, Ivanchuk. Hver annar á toppnum getur maður fylgst með og sagt “Þessi algerlega elskar skák”. Ætti að byggja styttu af Ivanchuk!

Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Var ekki ÓL þar á undan 2018? Ég bara vissi ekki hvað skák væri á þeim tíma haha. Ef ég þyrfti að giska myndi ég segja ca. 15. Sæti.

Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Get rétt ímyndað mér að sjófarar eiga það mjög bátt á bæði löndum.

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Að sjálfsögðu tekur Ísland þetta 11/11 í báðum flokkum. Sérstaklega með meistaranum sjálfum Hilmi, hvílikt moral boost. Ef við tölum frekar um 2. sæti, ætli maður segi ekki bara heimaliðið sjálft taki þetta aftur í opnum flokki, og Kína í kvennaflokki.

Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Er ekkert ofboðslega hrifinn af neinum þeirra :/ Rosenstein er líklega sæmilegastur, en býst við að Turlov verði kosinn.

Uppáhaldsskák?
Alltaf kósí um kvöldleitið að leita eftir skákum Braga Þorfinns 😅 Annars held ég að Ivanchuk v Kasparov á Linares mótinu (Held það var 90 eða 91? Skákin sem Ivanchuk vann amk)

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Voru þeir ekki með Kazimdzhanov eða hvernig sem maður skrifar nafnið einhverjum árum eftir að Kasparov og FIDE voru með smá drama?

Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Mátt endilega spyrja mig að þessu í lok sept. Þetta er nú fyrsta Ólympíuskákmót mitt.

Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Held ég þurfi að segja Michael Duke (Þekktur sem Mr Dodgy á netinu). Það að hafa haldið í hraðskákmót með heimsins bestu skákmönnum, og hvað fær 1. sæti? Mynd af Michael á hestbaki… 

Þitt markmið á mótinu?
Frá því að ég byrjaði í skák hef ég verið aðdáandi af íslensku skáklífi. Allur þessi framúrskarandi metnaður frá skákmönnum, skákstjórum, mótshöldurum, félögum, og sem skáksambandið sjálft hefur sýnt, algerlega stórkostlegt.

Að lokum?
Jättebra

- Auglýsing -