Við höldum áfram með Ólympíufarinn fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Í dag skoðum við Hrund Hauksdóttir sem teflir á sínu öðru ólympíuskákmóti.

Nafn og hlutverk

Hrund og ?

Gukesh eða Sindarov? 

Sindarov

Félag?  

Fjölnir

Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson? 

Hvorugt  – er þetta trikk spurning og Helgi drekkur svart? 🤔

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Skáklega hef ég verið að tefla í sumar og reyna skerpa á byrjununum mínum. Reyni að hreyfa mig reglulega og passa svefninn.

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal? 

Hull tekur silfrið – heyrðuð það fyrst hér

Bókin á náttborðinu?  

Nobody‘s fool eftir Harlan Coben – Hún hefur reyndar legið á þar síðan í fyrra, og ég á enn eftir að byrja á henni. 🙃

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta verður mitt annað Ólympíumót

Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?  
Kannski verður það bara bókin af náttborðinu 🤷🏼‍♀️

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)? 

Ég er soldill true crime fan svo síðasta sem ég horfði á var The Pastors Wife.

Hversu leiðinleg er rapptónlist?

Hún getur alveg verið ágæt

Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?  

Held það verði bara að vera Drottningin – segir sig sjálft 👸

Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?  

Veit ekki, Brons-ið ?

Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?

Eitthvað landfræðilegt, hvað þau eru langt frá sjó – land á milli í sjó, eða eitthvað svoleiðis

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki? 

Heimamenn í opna og kannski Kína í kvenna

Buettner, Rosenstein eða Turlov?

Megi sá besti taka sigurinn!

Uppáhaldsskák? 

Hmmm 🤔

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?  

Nei?

Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Skemmtilegast er að fá að tefla við alls konar andstæðinga frá ólíkum löndum, vera hluti af liðinu og upplifa stemninguna og andrúmsloftið á svona móti.
Erfiðast gæti líklega verið að gleyma síðustu skák og einbeita sér að þeirri næstu, sérstaklega eftir vonda tapskák. En sem betur fer þekki ég það ekki mjög vel 😜

Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák? 

Ég á enga sérstaka fyrirmynd, en amma kæmist líklega næst því. Hún tók lífinu aldrei of alvarlega, sem mér finnst góður eiginleiki.

Þitt markmið á mótinu?  

Reyna njóta þess að tefla, tefla vel og vonandi fylgja þá úrslitin með.
Aukamarkmið: Að byrja á bókinni góðu!

Að lokum?  

Áfram Ísland og muna taka legs líka, ekki bara hendur (nefni engin nöfn) 💪

- Auglýsing -