Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks Guðmund Kjartansson.
Nafn og hlutverk
Guðmundur Kjartansson, teflir á 5. borði í opnum flokki
Gukesh eða Sindarov?
Þetta verður mjög spennandi einvígi! Mun halda með báðum.
Félag
Taflfélag Reykjavíkur
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Ég drekk bæði te og koffínlaust kaffi. Ég fæ mér oftast cappuccino en Helgi hlýtur að setja meiri mjólk í kaffið víst þú ert að spyrja.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Skoða byrjanir, sofa, borða hollt, hreyfa sig, hugleiða.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
FYLKIR!!!!!!
Bókin á náttborðinu?
Einhverjar barnabækur
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Síðan 2014 (16, 18, 22, 24). Ætli þetta verði ekki mitt sjötta mót, 2020 féll niður, man ekki af hverju.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Föt
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Hef ekki haft mikinn tíma fyrir sjónvarpsgláp en ég horfði á heimildarmyndina um Judit Polgár og síðustu jól horfði ég á fyrstu fimm seríur The Chosen á Netflix.
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Ég get alveg hlustað á Eminem og Tupac. Ekki sammála því að rapp sé leiðinlegt.
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Ég hef alltaf dáðst að hugrekki peðsins!
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Ætla að giska á 20. sæti
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Ég hef ekki græna glóru.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Vona að það verði einhver óvænt úrslit eða nýjir sigurvegarar!
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Ripp, Rapp og Rupp
Uppáhaldsskák?
Fyrir utan mínar eigin sigurskákir þá eru margar skákir í uppáhaldi og listinn er langur en ég gæti t.d. nefnt Bagirov – Gufeld 1973 eða Bai Jinshi – Ding Liren 2017. Svo auðvitað Kasparov – Topalov og Fischer – Byrne.
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Já, Kasimdzhanov var heimsmeistari FIDE, 2002 minnir mig.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Þetta er auðvitað langstærsta skákhátíð í heimi og það er mikil upplifun að vera á staðnum og taka þátt.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Mamma!
Þitt markmið á mótinu?
Að undirbúa mig vel og berjast í hverri einustu skák og setja liðið alltaf framar eigin markmiðum.
Að lokum?
Það er alltaf mikill heiður að tefla fyrir Íslands hönd og ég vona að við sem lið munum sýna okkar allra bestu hliðar!
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill

















