Norðurlandamót skólasveita í skák hófst í dag í Helsingborg í Svíþjóð.

Tveir íslenskir skólar taka þátt á mótinu, Íslandsmeistararnir í Lindaskóla í eldri flokki (8.-10. bekk) og Langholtsskóla í yngri flokki (1.-7. bekk).

Lindaskóli (liðsstjóri: Björn Ívar Karlsson)
1. Birkir Hallmundarson
2. Örvar Hólm Brynjarsson
3. Sigurður Páll Guðnýjarson
4. Nökkvi Hólm Brynjarsson

Frá vinstri: Birkir, Örvar Hólm, Nökkvi Hólm, Sigurður Páll og Björn Ívar

Eldri flokkur á chess-results

Langholtsskóli (liðsstjóri: Gauti Páll Jónsson)
1. Pétur Úlfar Ernisson
2. Gunnar Þór Þórhallsson
3. Jakob Steinn Valdimarsson
4. Vilhelm Þór H. Hermansen

Frá vinstri: Gauti Páll, Pétur Úlfar, Vilhelm, Gunnar Þór og Jakob Steinn

Yngri flokkur á chess-results

Langholtsskóli mætti finnska skólanum Puolalan Koulu sem skartaði tveimur stigamönnum, og tveimur stigalausum, eins og Langholtsskóli.

Pétur Úlfar, fyrirliði liðsins, tefldi ótrúlega skák. Svona lýsir greinarhöfundur skákinni: Fæst orð bera minnsta ábyrgð.

Gunnar hafði tögl og haldir í sinni skák, en það hallaði undir fæti og svekkjandi tap niðurstaðan.

Jakob vann sína skák eftir að andstæðingurinn hans missti skyndilega mikið lið eftir að hafa unnið snemma peð.

Vilhelm stóð sig vel í flækjuskák og vann að lokum eftir að hafa teflt endataflið vel.

Úrslitin 3-1 Langholtsskóla í vil. Góð byrjun.

Í eldri flokki tefldi Lindaskóli við norsku sveitina frá Oppsal skole. Mjög þétt sveit enda varð viðureignin hörð barátta.

Á fyrsta borði stóð Birkir lengi vel betur en eftir að staðan opnaðist fór að halla undan fæti og hann varð að sætta sig við tap.

Sigurður Páll tefldi spennandi skák í þungri stöðubaráttu og hafði á köflum góð færi. Eftir mikil uppskipti leystist skákin upp í jantefli.

Örvar Hólm tefldi lengstu skák umferðarinnar og reyndi lengi að svíða vinning úr vænlegri stöðu. Andstæðingur hans varðist fimlega og uppskar jafntefli rétt fyrir miðnætti.

Nökkvi Hólm var maður dagsins hjá Lindaskóla og vann smekklegan sigur á 4. borði. Hann fékk vænlega stöðu út úr byrjuninni og í miðtafli, þar sem mistök komu á báða bóga, náði Nökkvi að snúa á andstæðing sinn og innbyrða góðan sigur.

Lokatölur 2-2 í skemmtilegri viðureign.

Tefldar eru fimm umferðir með tímamörkunum 90+30.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Föstudagur 11.09
17:15 – 1. umferð
Laugardagur 12.09
07:00 – 2. umferð
12:30 – 3. umferð
Sunnudagur 13.09
07:00 – 4. umferð
11:30 – 5. umferð
- Auglýsing -