Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks goðsögnina, Jóhann Hjartarson.
Nafn og hlutverk
Jóhann Hjartarson, teflir á 3. borði
Gukesh eða Sindarov?
Tel Sindarov sigurstranglegri en einvígi lúta eigin lögmálum og allt getur gerst
Félag?
Taflfélag Vestmanneyja
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Veit ekki hvað hann drekkur mikið en ég geri það svo sannarlega
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Eins og alltaf, reyni að stúdera, vera jákvæður og hreyfa mig eins og tími vinnst til
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Hef ekkert vit á fótbolta en spái að það verði Derby County úr því Ásgeir Þór heldur ennþá með þeim.
Bókin á náttborðinu?
Nýjasta tölublað Skírnis
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
12 sinnum fram að þessu ef ég tel það rétt
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Nýi landsliðsjakkinn sem Jóhanna forseti lét sauma á mig svo við yrðum öll jafn flott, fengum bara boli í gamla daga…
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Man það ekki, sofna yfirleitt alltaf um leið og ég sest niður og gleymi hvað ég byrjaði að horfa á
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Hún getur verið mjög skemmtileg, eitt áhugaverðasta ljóðaform nútímans
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Sá sem ég nota til að máta andstæðinginn – það er svo gaman að máta
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Varð það ekki 2. sætið ‘92 í kjölfar falls Sovétríkjanna, kom gríðarlega á óvart og maður þekkti hvorki haus né sporð á þessum mönnum þá.
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Hjörtur Ingvi var búinn að segja mér það í óspurðum fréttum fyrir löngu, eru landlukt og bæði umlukin löndum sem líka eru landlukt
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Fyrir utan Ísland eru það Indland og Kína
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Turlov úr því Anand er með honum í liði
Uppáhaldsskák?
13. einvígisskák Fischers og Spassky 1972
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Já, hinn viðkunnalega Rustam Kasimdzhanov
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Mesta skákveisla heims / að vera ofurseldur aðstæðum sem maður ræður ekkert við eins og að fá óætan mat í 2 vikur eins komið hefur fyrir
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Enginn ein / Karpov, því hann var bestur þegar ég var að taka út mestan þroska í skákinni og allir voru að mæla sig við hann
Þitt markmið á mótinu?
Að gera mitt besta og aðeins meira en það
Að lokum?
Þakka Birki Ísak fyrir góða þjálfun með Helga, ef hann verður ekki sjálfur framúrskarandi skákmaður á hann framtíðina fyrir sér sem skákþjálfari á heimsmælikvarða
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill
















