Við höldum áfram ólympíufarana. Að þessu sinni kynnum við til leiks Iðunni Helgadóttur. Það að kvennaliðið er kynnt fyrr til sögunnar er að strákarnir eru miklu meira slugsar að skila frá sér!
Nafn og hlutverk
Iðunn Helgadóttir, kvennalandsliðskona.
Gukesh eða Sindarov?
Mér finnst líklegra að Sindarov taki þetta.
Félag?
TR.
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Já, drekk alltaf nóg af mjólk með kaffinu mínu. Veit samt ekki hvort það sé meira en Helgi.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Ég er búin að vera að reyna að tefla á eins mörgum mótum og ég get. Auk þess labba ég fullt og reyni að mæta eitthvað í ræktina.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Hull!
Bókin á náttborðinu?
Ég les voða lítið af bókum.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Hef farið einu sinni áður.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Tölvan er must í öllum skákferðum.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Ég er búin að vera að horfa á Friends í sjötta sinn.
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Rapptónlist getur oft verið góð.
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Ætli ég segi ekki bara drottningin, af augljósum ástæðum.
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Veit ekki, ég ætla að giska á top 10 árið 2020.
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Þau eru tvöfalt landlocked!
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Indland í báðum flokkum.
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Ég hef ekkert kynnt mér þetta.
Uppáhaldsskák?
Skákin mín gegn Júlíu Ostenson á NM stúlkna 2025 þegar ég varð Norðurlandameistari.
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Ekki svo ég muni, amk ekki í kappskák. Mig minnir samt að Abdusattorov hafi unnið heimsmeistaramótið í hrað- eða atskák fyrir nokkrum árum.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Það skemmtilegasta er klárlega að fá að tefla á sama móti og bestu skákmenn heims og að sjá allt fólkið sem kemur alls staðan að úr heiminum.
Það erfiðasta myndi ég segja að væri að borða sama matinn í tvær vikur.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Ætli maður verði ekki bara að segja Judit Polgar?
Þitt markmið á mótinu?
Að fá fleiri vinninga en síðast. Þá fékk ég 5/9.
Að lokum?
Áfram Ísland! Og áfram Hull!
————-
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill

















