Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks Lenku Ptácníkovú sem venju samkvæmt teflir á fyrsta borði fyrir Íslands hönd.
Nafn og hlutverk
Lenka Ptácníková, keppir fyrir kvennalandslið Íslands
Gukesh eða Sindarov?
Sindarov.
Félag?
TG
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Dýrka bæði! En á síðustu mánuðum nota ég talsvert minna mjólk og oftast koffínlaust kaffi.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Á síðustu mánuðum var ég að æfa mikið og taka þátt í fjölda sterkra móta. Fjöldi göngutúra. Nýlega fengum við þann heiður að passa hund, þvílíkur andlegur undirbúningur, þekki ekki afslappaðri veru!
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
…
Bókin á náttborðinu?
Pověsti a pohádky Terezského údolí
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Síðan 1994 á öll.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Ferskt íslenskt loft og útsaumur með þremur sætum fílum.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Otec Brown (Father Brown)
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Fer eftir á hversu hátt tónlistin er spilað. Yfirleitt ekki það sem ég velji, en getur jafnvel verið skemmtilegt!
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Riddari, oftast lítur eins og hestur og getur verið flottur og líflegur.
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Ekki hugmynd.
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Enginn sjór í kringum nágrannalöndin. Hjá báðum eru það tvö lönd til að komast í sjóinn.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Í opnum giska ég á heimamenn, í kvennaflokki Úkraínu.
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Ein þeirra, er ekki að fylgjast mikið með skákpólitík.
Uppáhaldsskák?
Nýlega rakst ég á skák frá Bellón López, sérstaklega lokastaðan er mjög krúttleg.
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Já.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Að fá tækifæri að kynnast fólki frá öllum ótrúlegustu pörtum heimsins.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Fullt af flottu fólki í þessum heimi…
Þitt markmið á mótinu?
Að gera mitt besta og berjast í hverri einustu skák!
Að lokum?
Áfram Ísland!
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill


















