Gauti Páll fer yfir skákir sinna manna

Norðurlandamót skólasveita í skák hélt áfram í dag í Helsingborg í Svíþjóð.

Tveir íslenskir skólar taka þátt á mótinu, Íslandsmeistararnir í Lindaskóla í eldri flokki (8.-10. bekk) og Langholtsskóla í yngri flokki (1.-7. bekk).

Lindaskóli (liðsstjóri: Björn Ívar Karlsson)
1. Birkir Hallmundarson
2. Örvar Hólm Brynjarsson
3. Sigurður Páll Guðnýjarson
4. Nökkvi Hólm Brynjarsson

Eldri flokkur á chess-results

Langholtsskóli (liðsstjóri: Gauti Páll Jónsson)
1. Pétur Úlfar Ernisson
2. Gunnar Þór Þórhallsson
3. Jakob Steinn Valdimarsson
4. Vilhelm Þór H. Hermansen

Yngri flokkur á chess-results

Í annarri umferð mætti Langholtsskóli (U13) sænska skólanum Västbergaskolan.

Pétur Úlfar gerði jafntefli í skák þar sem hann hefði getað reynt aðeins meira í lokin. Algjör killer var í stöðunni í 28. leik, nefnilega Hf6 og svartur er með tapað tafl. Uppskipti á hrókum voru ekki góð.

Hér hefði Hf6 verið góður.

Gunnar Þór gerði jafntefli en einnig eftir mikil færi í miðtafli og loks mistök í endatafli sem hægt er að læra af.

Hér hefði …Bc6 klárað skákina!

Jakob Steinn vann afar sannfærandi og góðan sigur eftir mannsvinning snemma tafls og ekkert hökt í úrvinnslunni.

Vilhelm Þór tapaði sinni skák á svipaðan hátt og andstæðingur Jakobs, tapaði því miður manni snemma tafls og það var ekki aftur snúið úr þeirri stöðu.

Lokatölur 2-2.

Þriðja umferð endaði líka 2-2 hjá Langholtsskóla, nú gegn norska skólanum Tåsen Skole.

Pétur Úlfar tefldi sannfærandi gegn ósannfærandi Sikileyjavörn hvíts. Eftir ónákvæma leiki hvíts tók Pétur yfirhöndina og landaði sigri með mátsókn.

Gunnar Þór missti í miðtaflinu tvö peð sem reyndist of mikið og án mikils mótspils varð kóngurinn mát.

Jakob Steinn tapaði sinni skák eftir liðstap snemma tafls.

Vilhelm Þór var hetja Langholtsskóla í þessari umferð þegar hann vann stigamann í kappskák í fyrsta sinn. Skákin var afar sannfærandi en eftir mannsvinning í 13. leik sigldi Vilhelm sigrinum heim og tryggði úrslitin 2-2.

Langholtsskóli er fyrir lokadaginn í öðru sæti en á eftir krefjandi viðureignir.

Lindaskóli tapaði 1-3 gegn Berzeliusskolan frá Svíþjóð. Sá skóli hefur örugga forystu á mótinu.

Örvar Hólm er með 2,5 vinning í 3 skákum

Örvar Hólm náði í eina sigur skólans í viðureigninni í spennandi skák.

Í þriðju umferð gerði Lindaskóli 2-2 jafntefli gegn danska skólanum Giersings Realskole.

Örvar Hólm og Sigurður Páll unnu góðar skákir en Birkir og Nökkvi Hólm töpuðu. Birkir hefur enn ekki náð sér á strik á mótinu.

Sigurður Páll hefur teflt traust á mótinu

Lindaskóli er fyrir lokadaginn í 5. sæti.

Tefldar eru fimm umferðir með tímamörkunum 90+30.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Föstudagur 11.09
17:15 – 1. umferð
Laugardagur 12.09
07:00 – 2. umferð
12:30 – 3. umferð
Sunnudagur 13.09
07:00 – 4. umferð
11:30 – 5. umferð
- Auglýsing -