Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og kvennaflokki.
Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!
Við höldum áfram í dag og kynnum til leiks Guðmund Kjartansson sem teflir á sínu fjórða Ólympíuskákmóti á Chennai.
Nafn
Guðmundur Kjartansson
Félag
Taflfélag Reykjavíkur
Aldur
34
Uppáhaldsskákmaður og skákkona?
Kasparov og Judit Polgar
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Skáklega að þá er ég fyrst og fremst í byrjanaundirbúningi en leysi líka þrautir og tefli eitthvað af hraðskákum. Sahaja Yoga hugleiðsla hjálpar mér með andlegu hliðina. Líkamlegur undirbúningur felst í því að fara í ræktina og borða hollan mat. Svo verð ég mættur meira en viku fyrir mót til Indlands ásamt Hannesi Hlífari til þess að aðlagast aðstæðum.
Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Ég kynntist indverskum skákmanni úti á Ítalíu nú í júní og varð vitni að því þegar hann varð nýjasti stórmeistari Indlands svo að ég ætti að vita þetta… ætla að giska á 65
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Tromsö, Baku, Batumi. Þetta er mitt fjórða Ólympíumót.
Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?
Með eða án hans, líklega já.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Indverjar eru á heimavelli svo ég segi að þeir vinni opna flokkinn. Úkraína tekur kvennaflokkinn.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Ég horfi mjög lítið á Netflix, aðallega þá Seinfeld. Í gærkveldi horfði ég reyndar á heimildarþátt á Disney+ um rússnesku byltinguna 1917.
Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?
Að sjálfsögðu mun hann tefla
Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:
Toms Kantans-GK Batumi 2018
Hvernig finnst þér indverskur matur?
Ég elska indverskan mat
Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?
Dvorkovich
Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?
Gandhi
Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?
Capablanca, Tal og Spassky. Ætli þeir séu ekki hressir og skemmtilegir
Ólympíufararnir
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
- GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
- GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
- WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
- WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
- GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
- IA Omar Salama (skákstjóri)
- Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
















