Simen Agdestein. Mynd: Anniken Vestby

Simen Agdestein er skákmeistari Noregs í áttunda sinn. Hann er sá elsti í sögunni en hann er 55 ára. Var býinn að tryggja sér sigur á mótinu þegar einni umferð var ólokið. Til samanburðar á Jóhann Hjartarson Íslandsmetið en hann var 53 ára þegar hann varð hampaði titlinum árið 2016 á Seltjarnarnesi.

Það er 40 ár síðan Simen varð fyrst Noregsmeistari í Lillehammer 1982. Þá 15 ára. Met sem enn stendur. Simen kom í veg fyrir að Magnus Carlsen næði aldursmetinu árið 2005 þegar hann lagði heimsmeistarann tilvonandi í úrslitakeppni. Héðinn Steingrímsson á  Íslandsmetið en hann var 15 ára árið 1990 á Höfn í Hornarfirði.

Simen er því sá yngsti og helsti sem hefur orðið skákmeistari Noregs! Agdestein hætti sem forseti Skáksambands Noregs á meðan mótinu stóð í Kongsvinger.

Nánar á Chess24.

Því má bæta við að fyrir skemmstu varð Johnny Hector skákmeistari Svíþjóðar, 58 ára! Ritstjóri veit ekki hvort þar sé á ferðinni elsti Svíþjóðarmeistari sögunnar.

Nánar á heimasíðu FIDE

 

- Auglýsing -